Fara í efni  

Bæjarráð

3341. fundur 16. apríl 2018 kl. 17:30 - 18:45 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá
Jóhann Þórðarson endurskoðandi, Þorgeir Jónsson fjármálastjóri, Andrés Ólafsson verkefnastjóri og Sigmundur Ámundason aðalbókari, tóku sæti á fundinum undir liðum 1 til og með 3.

1.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2017 - A hluti

1804133

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2017 - A hluti
1.1 Aðalsjóður
1.2 Eignasjóður
1.3 Byggðasafn
1.4 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf.
Rekstrarniðurstaða A-hluta, fyrir óreglulega liði, þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð vegna breytinga á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna sbr. lög 127/2016, er jákvæð um 722,2 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 179,4 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða A-hluta eftir óreglulega liði er jákvæð um 245,6 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 179,4 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur:
Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í þús.króna 565.874 en nam kr. 615.179 árið 2016.
Skuldaviðmið er 61% en var 62,% árið 2016.
EBITDA framlegð er 12,52% en var 4,28% árið 2016.
Veltufé frá rekstri er 13,96% en var 16,44% árið 2016.
Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 98% en var 99% árið 2016.
Eiginfjárhlutfall er 52% en var 55% árið 2016.
Veltufjárhlutfall er 1,7 en var 1,79 árið 2016.

Bæjarráð staðfestir ársreikninga Aðalsjóðs og Eignasjóðs með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn að ársreikningar Aðalsjóðs, Eignasjóðs, Byggðasafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. verði samþykktir.

2.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2017 - B-hluti

1804134

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2017 - B hluti
2.1 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf.
2.2 Gáma
2.3 Háhiti ehf.
2.4 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Rekstrarniðurstaða B-hluta var neikvæð um 5,9 mkr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 2,5 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Bæjarráð staðfestir ársreikning Gámu með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn að ársreikningar Fasteignafélagsins ehf., Gámu, Háhita ehf. og Höfða hjúkrunar og dvalarheimilis verði samþykktir.

3.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2017 - samstæða

1804135

Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2017.
Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2017.

Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, fyrir óreglulega liði þ.e. þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð vegna breytinga á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna sbr. lög 127/2016, var jákvæð um 716,3 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 181,9 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, eftir óreglulega, var jákvæð um 239,7 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 181,9 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur:
Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í þús.króna 1.330.042 en nam 1.235.960 árið 2016.
Skuldaviðmið er 61% en var 62,% árið 2016.
EBITDA framlegð er 11,55% en var 3,89% árið 2016.
Veltufé frá rekstri er 12,73% en var 14,58% árið 2016.
Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 93% en var 94% árið 2016.
Eiginfjárhlutfall er 50% en var 53% árið 2016.
Veltufjárhlutfall er 1,62 en var 1,66 árið 2016.

Bæjarráð staðfestir samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar með undirritun og leggur til við bæjarstjórn að reikningurinn verði samþykktur.

4.Söngkeppni framhaldsskólanna

1804145

Umsókn frá Ísólfi Haraldssyni f.h. fyrirtækisins Vinir hallarinnar um heimild bæjarráðs fyrir endurgjaldslausum afnotum af íþróttahúsinu á Vesturgötu vegna viðburðarins Söngkeppni framhaldsskólanna sem fyrirhugað er að halda á Akranesi 28. apríl næstkomandi.
Bæjarráð heimilar að viðburðurinnn verði haldinn í íþróttahúsinu á Vesturgötu án endurgjalds vegna húsnæðisins en leggur áherslu á að umgjörð er varðar skipulagningu og gæslu verði í samræmi við þann fjölda ungmenna sem sækja viðburðinn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

Fundi slitið - kl. 18:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00