Fara í efni  

Bæjarráð

3335. fundur 15. febrúar 2018 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2018

1801190

42. mál til umsagnar - frumvarp til laga um útlendinga (fylgdarlaus börn).
34. mál til umsagnar - frumvarp til laga um útlendinga (réttur barna til dvalarleyfis).
9. mál til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um skilyrðislausa grunnframfærsla (borgaralaun.)
Lagt fram.

2.Umsögn um lagafrumvarp um ýmis ákvæði sem tengjast fiskeldi

1802123

Drög að frumvarpi um breytingar á ákvæðum um fiskeldi.
Lagt fram.

3.Sansa streetfood

1802164

Þórður Gylfason og Auður Líndal taka sæti á fundinum undir þessum lið og kynna hugmynd um fyrirhugaða uppbyggingu fyrirtækisins Sansa streetfood.

Svala Hreinsdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður Fjöliðjunnar og Sædís Alexía Sigurmundsdóttir taka einnig sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar Þórði og Auði fyrir afar áhugaverða kynningu og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

4.Styrkir vegna menningar- íþrótta- og atvinnumála 2018

1711170

Hjálagðar eru tillögur menningar- og safnanefndar og skóla- og frístundaráðs um úthlutun styrkja vegna umsókna á svið menningar og íþróttamála. Umsóknir ótengdar áðurnefndum sviðum er á ábyrgð bæjarráð að úthluta.

Samhliða er lagt fram minnisblað verkefnastjóra um vinnslu umsókna og tillögur um breytingar á styrktarúthlutum.
Bæjarráð þakkar fulltrúum skóla- og frístundasviðs og menningar- og safnanefndar sem og verkefnastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs fyrir þeirra vinnu og tillögur.

Bæjarráð fagnar auknum fjölda umsókna sem sýnir mikla grósku í grasrótarstarfi á sviði menningar-, íþrótta- og atvinnumála á Akranesi og þakkar umsækjendum fyrir vandaðar og greinargóðar umsóknir.

Bæjarráð telur rétt að huga að breytingum í þá veru sem gerð er tillaga í meðfylgjandi minnisblaði og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins. Gert er ráð fyrir að nýjar og breyttar reglur taki gildi fyrir úthlutun vegna ársins 2019.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur um úthlutun að uppfylltum þeim skilyrðum að styrkþegar sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga hafi til staðar siðareglur,viðbragðsáætlanir og fræðslu um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi.

Bæjarráð frestar afgreiðslu styrkveitinga til umsókna sem teljast til atvinnumála og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu þeirra.

5.Brú Lífeyrissjóður - breyting á A deild

1703139

Upplýsingar í tengslum við breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna.
Bæjarráð þakkar Karli Björnssyni framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir mjög greinargott og ítarlegt yfirlit um þróun lífeyriskerfis opinberra starfsmanna.

6.Lífeyrissjóður starfsm. sveitarfélaga - endurgreiðsluhlutfall B- deildar Akraneskaupstaðar 2018

1802131

Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnar Brúar lífeyrissjóðs sbr. útreikninga tryggingastærðfræðings sjóðsins, um 62% endurgreiðsluhlutfall Akraneskaupstaðar á greiddum lífeyri í réttindasafni lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018.

Endurgreiðsluhlutfallið vegna ársins 2018 er 6% hærra en vegna fyrra árs. Áætlað er að heildarútgjöld vegna endurgreiðslu á greiddum lífeyri verði samtals um 100 mkr. sem er 10 mkr. hærri fjárhæð en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir.

Útgjöldunum verður mætt með lækkun á handbæru fé.

Bæjarráð vísar ákvörðuninni til bæjarstjórnar til staðfestingar og til gerðar viðauka.

7.Húsmæðraorlof 2018 - Orlofsnefnd Mýra- og Borgarfjarðars.

1802146

Erindi Orlofsnefndar Mýra- og Borgarfjarðarsýslu um framlag til orlofs fyrir árið 2018.
Bæjarráð þakkar erindið.

Gert er ráð fyrir útgjöldunum í fjárhagsáætlun ársins og verður framlagið greitt til orlofsnefndar í samræmi við 5. gr. laga um húsmæðraorlof nr. 53/1972.

Bæjarráð beinir þeim tilmælum enn á ný til þingmanna kjördæmisins að þeir beiti sér fyrir afnámi laganna enda ljóst að þau endurspegla ekki nútímaviðhorf og grundvallareglur um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla sbr. lög nr. 10/2008.

8.Þriggja fasa rafmagn - starfshópur um raforkuflutning í dreifbýli

1802151

Beiðni frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu um greiningu á þörf íbúa og fyrirtækja fyrir þrífasa rafmagni sé það ekki fyrir hendi á umráðasvæði viðkomandi sveitarfélags.
Bæjarráð þakkar erindið og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

9.Baugalundur 1 umsókn um byggingarlóð

1802048

Umsókn Seating consept á Íslandi ehf. um byggingarlóð við Baugalund 1. Umsóknargjald hefur verið greitt svo að umsókn er tæk til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir úthlutun byggingarlóðarinnar til umsækjanda.

10.Baugalundur 4 - umsókn um byggingarlóð

1801313

Umsókn Skagans ehf. um byggingarlóð við Baugalund 4. Umsóknargjald hefur verið greitt svo að umsókn er tæk til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir úthlutun byggingarlóðarinnar til umsækjanda.

11.Baugalundur 7 - umsókn um byggingarlóð

1801312

Umsókn Grenja ehf. um byggingarlóð við Baugalund 7. Umsóknargjald hefur verið greitt svo að umsókn er tæk til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir úthlutun byggingarlóðarinnar til umsækjanda.

12.Útdráttur lóða í Skógarhverfi 1 og 2

1802176

Útdráttur lóða í Skógarhverfi 1 og 2
Bæjarráð fagnar þeim mikla áhuga sem er á frekari uppbyggingu á Akranesi.

Bæjarráð hyggst úthluta lóðunum með útdrætti á sérstökum aukafundi ráðsins þann 8. mars næstkomandi kl. 16:00.

Verði breyting á til seinkunar verður það tilkynnt sérstaklega með auglýsingu á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

13.Gjaldskrár skóla- og frístundasviðs árið 2018

1710094

Skóla- og frístundaráð samþykkti tillögu að sameiginlegri gjaldskrá fyrir allt dagstarf í Þorpinu. Ekki er um kostnaðaraukningu að ræða heldur einföldun á gjaldskrá með því að setja allt dagstarf í Þorpinu í eina gjaldskrá í stað tveggja.
Bæjarráð samþykkir tillögu skóla- og frístundaráðs um breytta gjaldskrá fyrir allt dagstarf í Þorpinu.

14.Tillaga að breytingum varðandi reglur um tómstundaframlag Akraneskaupstaðar

1801252

Skóla- og frístundaráð samþykkti tillögu að breytingum á reglum um tómstundaframlag. Breytingarnar fela í sér samræmingu á nýju verklagi sbr. tengingu við íbúagáttina og Hvata sem heldur utan um greiðslur á tómstundaframlagi.
Bæjarráð samþykkir tillögu skóla- og frístundaráðs um breytingar á reglum um tómstundaframlag Akraneskaupstaðar. Breytingarnar felast í breyttu verklagi vegna rafrænnar tengingar við íbúagátt Akraneskaupstaðar.

15.Dalbraut 6 - þrif á æfingaaðstöðu FIMA

1801209

Erindi frá Fimleikafélagi Akraness varðandi þrif á Dalbraut 6. Skóla- og frístundaráð leggur til að bæjarráð að Akraneskaupstaður greiði FIMA styrk til þrifa meðan starfsemi þeirra er að Dalbraut 6.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

16.Hreggi AK-85 - forkaupsréttur

1801282

Erindi skipasölunnar Bátar og búnaður þar sem ókað er eftir svari við hvort sveitarfélagið nýti forkaupsrétt í bátinn Hreggi AK-85 þar sem tilboð hefur borist í bátinn.
Bæjarráð fellur frá forkaupsrétti sveitarfélagsins sbr. 3. mgr. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 en núverandi lagaumhverfi tryggir sveitarfélögum einungis forkaupsrétt að fiskipum en ekki að þeim aflaheimildum sem kunna að fylgja viðkomandi fiskiskipi.

17.OR - fyrirkomulag á innri endurskoðun

1711184

Erindi frá stjórn OR varðandi fyrirkomulag innri endurskoðunar OR.
Bæjarráð telur það fyrirkomulag ákjósanlegt að hafa sameiginlega endurskoðunarnefnd fyrir Orkuveitu Reykjavíkur sf. og Reykjavíkurborg eins og starfrækt hefur verið undanfarin ár. Bæjarráð telur mikilvægt að stjórn OR ráði innri endurskoðanda til félagsins sem stýri eftirlitskerfi félagsins og geti veitt óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf til eigenda og stjórnenda.

18.Vegir á Vesturlandi - ástand / tvöföldun vegar á Kjalarnesi

1801082

Svarbréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna ályktunar bæjarstjórnar Akraness um vegi á Vesturlandi.
Lagt fram.

19.Aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum

1802165

Viljayfirlýsing um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum og bókun stjórnar sambandsins.
Bæjarráð tekur undir efni viljayfirlýsingar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á vettvangi Akraneskaupstaðar stendur yfir vinna varðandi innleiðingu ferla er lúta að einelti og kynferðislegri áreitni.

20.Samningar um samstarf sveitarfélaga

1801310

Erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um endurskoðun samninga um samstarf sveitarfélaga sem í gildi eru hér á landi.
Lagt fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00