Fara í efni  

Bæjarráð

3292. fundur 18. október 2016 kl. 16:30 - 21:05 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Kristín Sigurgeirsdóttir varaáheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá
Undir fundarliðum 4 til 7 sátu fulltrúar bæjarstjórnar og skóla- og frístundaráðs.

1.Fundargerðir 2016 - menningar- og safnarnefnd

1601010

33. fundargerð menningar- og safnamála frá 20. september 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Fundargerðir 2016 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

1602030

138. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 3. október 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Fundargerðir 2016 - SSV

1602246

126. fundargerð stjórnar SSV frá 4. október 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4.FIMA - húsnæðismál

1310193

Erindi Fimleikafélags Akraness um framtíðarlausn á húsnæðismálum félagsins og ósk um viðræður við bæjarráð um málefnið.
Guðmundur Claxton, Ingibjörg Indriðadóttir, Anna Þóra Þorgilsdóttir, Jóhann Sigurðsson og Sigrún Mjöll Stefánsdóttir frá FIMA taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar fulltrúum FIMA fyrir kynninguna og er erindinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

5.Rekstrarsamningur Vélhjólaíþróttafélags Akraness

1601395

Ósk Vélhjólafélags Akraness um viðræður við Akraneskaupstað um endurnýjun rekstrarsamnings.
Jóhann Pétur Hilmarsson, formaður Vélhjólaíþróttafélagsins tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

6.ÍA - forgangsröðun verkefna

1610126

Helga Sjöfn Jóhannesdóttir og Hildur Karen Aðalsteinsdóttir frá Íþróttabandalagi Akraness taka sæti á fundinum til að ræða helstu áherslur bandalagsins í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Bæjarráð þakkar fulltrúum ÍA þeim fyrir kynninguna og vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

7.Framkvæmdaáætlun 2017 - 2020

1609061

Fjárfestingar 2017-2020 - forgangsröðun.

Málinu frestað til næsta fundar.
Fulltrúar úr bæjarstjórn og skóla- og frístundaráði véku af fundi.

8.Samgönguáætlun Vesturlands 2017-2029

1610095

Erindi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um samgönguáætlun fyrir Vesturland 2017-2029.
Bæjarráð Akraness lýsir yfir ánægju með störf vinnuhóps um samgönguáætlun og samþykkir fyrir sitt leyti þá forgangsröðun framkvæmda sem fram kemur í skýrslu hópsins.

Bæjarráð áréttar mikilvægi þess að efni skýrslunnar verði kynnt rækilega fyrir þingmönnum kjördæmisins og ráðherra samgöngumála og þeirri kynningu fylgt eftir af fullum þunga.

9.Þjónustumiðstöð að Dalbraut 6

1410165

Erindi starfshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6. Fyrir liggur endanleg skýrsla hópsins.
Bæjarráð þakkar þeim Ólafi Guðmundssyni, Jóhannesi Ingibjartssyni, Laufeyju Jónsdóttur og Jón Hróa Finnssyni og öðrum þeim sem komu að gerð skýrslunnar kærlega fyrir vandað verk. Skýrslunni er vísað til velferðar- og mannréttindaráðs og skipulags- og umhverfisráðs til umsagnar og í kjölfarið verða teknar upp viðræður við stjórn FEBAN um húsnæðismál eldri borgara á Akranesi og annað samstarf á milli bæjarfélagsins og FEBAN.

10.Kirkjubraut 40 - húsaleiga á félagsaðstöðu fyrir eldri borgara

1610004

Nýr leigusamningur Akraneskaupstaðar og Verkalýðsfélags Akraness varðandi áframhaldandi leigu húsnæðisins að Kirkjubraut 40 til afnota fyrir félagsaðstöðu eldri borgara á Akranesi.
Bæjarráð samþykkir að framlengja leigusamning við Verkalýðsfélag Akraness um aðstöðu að Kirkjubraut 40 en samningurinn er ótímabundinn með 6 mánaða uppsagnarákvæði.

11.Langtímaveikindi starfsmanna 2016 - ráðstöfun fjármuna (veikindapottur)

1512118

Umsóknir stofnana Akraneskaupstaðar í veikindapott vegna tímabilsins janúar til og með júní.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um ráðstöfun veikindapotts vegna fyrri hluta ársins 2016 og verði alls 13,9 mkr. úthlutað nú en fyrir lok nóvember verði úthlutað fjármagni fyrir síðari hluta tímabilsins.

12.Fjárhagsáætlun 2017 - 2020

1606079

Endurskoðuð tíma- og verkáætlun og samþykkt forsendna fjárhagsáætlunar 2017.
Bæjarráð samþykkir forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2017 og endurskoðaða tíma- og verkáætlun vegna fjárhagsáætlunargerðarinnar.

13.Gallup könnun - þjónusta sveitarfélaga 2016

1609173

Erindi Gallup um árlega könnun Gallup á þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins.
Bæjarráð telur mikilvægt að mæla viðhorf til helstu þjónustuþátta Akraneskaupstaðar á tveggja ára fresti og mun því ekki kaupa hefðbundnar spurningar á þessu ári. Hinsvegar felur bæjarráð bæjarstjóra að ganga til samninga við Gallup um kaup á sérstökum spurningum sem lúta meðal annars að ferðavenjum Akurnesinga og einnig viðhorfi til þátttöku sveitarfélagsins í landshlutasamtökum.

14.Styrkir til greiðslu fasteignaskatts v/ aðila með starfsemi í menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmálum.

1604165

Tillaga um styrki til félaga, vegna greiðslu fasteignaskatts samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Bæjarráð samþykkir úthlutun til eftirfarandi aðila:

Akur frímúrarastúka, samtals kr. 571.176
KFUM og KFUK, samtals kr. 531.729
Oddfellow, samtals kr. 469.586
Skátafélag Akraness, samtals kr. 258.299
Rauði Krossinn, samtals kr. 119.963
Hestamannafélagið Dreyri, samtals kr. 207.828

Heildarfjárhæðinni, samtals kr. 2.158.582, verður ráðstafað af liðnum 20830-5946, önnur framlög en þau félög sem eiga rétt á úthlutun fá styrk sem nemur 65,5% af fasteignaskatti C.

15.Mannauðsdagur Akraneskaupstaðar árið 2016

1610134

Erindi til bæjarráðs vegna mannauðsdags Akraneskaupstaðar sem haldinn verður þann 15. nóvember næstkomandi.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með þá undirbúningsvinnu sem hefur átt sér stað vegna mannauðsdags Akraneskaupstaðar 2016 og samþykkir lokun bæjarskrifstofunnar eftir hádegi þann 15. nóvember og lokun íþróttamannvirkja að Vesturgötu og Jaðarsbökkum sama dag.

16.Akranesviti á Breið - leigusamningur

1610129

Erindi Vegagerðarinnar um samning um leigu og afnot af Akranesvita.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Vegagerðina um afnot af Akranesvita og viðhald á mannvirkjum á svæðinu.

17.Körfuknattleikfélag Akraness - leyfi vegna auglýsinga

1610128

Erindi körfuknattleiksfélags Akraness um heimild til sölu auglýsinga í íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Afgreiðslu málsins frestað.

18.Niðurgreiðsla vegna daggæslu hjá dagforeldrum og innritunar á leikskóla - áskorun til Akraneskaupstaðar

1610149

Áskorun til bæjaryfirvalda um endurskoðun reglna varðandi niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagforeldrum og innritunarreglur á leikskóla bæjarins.
Bæjarráð vísar erindinu til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

19.Skógræktarfélag Akraness - styrkbeiðni

1610131

Erindi Skógræktarfélags Akraness um áframhaldandi fjárhagsstuðning árið 2017.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

20.Menningarverðlaun Akraness 2016

1610098

Tillaga menningar- og safnanefndar um menningarverðlaun Akraneskaupstaðar árið 2016.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.

21.Jólaúthlutun 2016 - styrkbeiðni

1610115

Erindi Mæðrastyrksnefndar Akraness um áframhaldandi styrk vegna jólaúthlutunar 2016.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

22.Snorraverkefnið - styrkbeiðni

1610053

Beiðni um stuðning við Snorraverkefnið 2017.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

23.Hækkun mótframlags launagreiðenda í A deild Brúar lífeyrissjóðs

1610008

Erindi Brúar lífeyrissjóðs um hækkun mótframlags launagreiðenda í A deild sjóðsins.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 21:05.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00