Fara í efni  

Bæjarráð

3277. fundur 31. mars 2016 kl. 18:00 - 21:35 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Fundargerðir 2016 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

1602030

133. fundargerð Heilbrigðiseftirlits Vesturlands frá 7. mars 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Fundargerðir 2016 - Samband ísl. sveitarfélaga

1603032

837. fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. mars 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016

1601444

242. mál um eflingu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.
247. mál um mótun stefnu til að draga úr notkun á skaðlegum efnum í neysluvörum.
354. mál um skilyrðislausa grunnframfærslu (borgaralaun).
Lögð fram til kynningar.

"Bæjarráð fagnar tímabærri eflingu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og felur bæjarstjóra að senda umsögn þar að lútandi. Jafnframt verði minnt á að Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi er eina sjúkrahúsið á suðvesturhorninu sem er utan skilgreindra hamfarasvæða og því beri að staðfesta hlutverk stofnunarinnar sem varasjúkrahús fyrir Landspítala og að það verði haft að leiðarljósi við framtíðaruppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.

4.Sementsreitur - framtíðaruppbygging

1603149

Niðurrif og framtíðaruppbygging á Sementsreit.
Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætir á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda formlegt erindi fjárlaganefndar og fjármála- og efnahagsráðherra með beiðni um þátttöku í kostnaði vegna niðurrifs.

Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu varðandi þær eignir sem eru í útleigu á reitnum í samræmi við ákvarðanir sem tengjast framvindu skipulagslýsingar sem er í vinnslu í skipulags- og umhverfisráði.

5.Þjónustusvæði í málefnum fatlaðra

1510028

Bæjarstjórn Akraness fól bæjarstjóra á fundi sínum þann 8. mars 2016, að kanna afstöðu Hvalfjarðarsveitar til samstarfs í málefnum fatlaðra, m.a. sameiginlegs reksturs þjónustusvæðis.

Fyrir liggur svarbréf sveitarstjórnar þar sem tekið er jákvætt í erindi Akraneskaupstaðar.
Bæjarráð þakkar Hvalfjarðarsveit fyrir undirtektirnar og felur bæjarstjóra að sækja um undanþágu frá stærðarviðmiðum til félags- og húsnæðismálaráðherra.

6.Jöfnunarsjóður - Framlög 2015

1410203

Bréf Jöfnunarsjóðs dags. 8. mars 2016, um framlög úr sjóðnum vegna ársins 2015.
Lagt fram til kynningar.

7.Orkuveita Reykjavíkur - verðmat

1603106

Erindi Borgarbyggðar dags. 10. mars 2016, þar sem óskað er eftir viðræðum vegna verðmats á Orkuveitu Reykjavíkur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsingar um málið.

8.Flóasiglingar

1501150

Lagt fram yfirlit umsækjenda um ferjusiglingu á milli Reykjavíkur og Akraness.
Sigurður Páll Harðarsons sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætir á fundinn undir þessum lið og gerir grein fyrir stöðu mála.

9.Þjónustumiðstöð að Dalbraut 6

1410165

Í bréfi dagsettu 15. mars 2016 óskar samráðshópur Akraneskaupstaðar og FEBAN um þjónustumiðstöð fyrir aldraða eftir heimild bæjarráðs til að ganga að tilboði Al-hönnunar ehf. í frumhönnun á breytingum á húsnæðinu að Dalbraut 6. Frumhönnunin yrði grundvöllur fyrir áætlun kostnaðar við breytingarnar og tillögum að áfangaskiptingu verkefnisins, sbr. erindisbréf samstarfshópsins.
Bæjarráð heimilar starfshópnum að taka tilboði Al- hönnunar vegna frumhönnunar á húsnæðinu Dalbraut 6.

Gert er ráð fyrir útgjöldunum í fjárfestingaáætlun ársins.

10.Asparskógar 29, umsókn um byggingarleyfi

1602159

Umsókn Uppbyggingar ehf. um greiðslufrest á seinni hluta gatnagerðargjalda vegna lóðar að Asparskógum 29.
Bæjarráð fellst á að veita gjaldfrest með vísan til 5. mgr. 10. gr. gjaldskrár Akraneskaupstaðar nr. 710/2015 með skilyrði um að væntanleg gögn staðfesti fjármögnun.
Fylgiskjöl:

11.Asparskógar 27, umsókn um byggingarleyfi

1602158

Umsókn Uppbyggingar ehf. um greiðslufrest á seinni hluta gatnagerðargjalda vegna lóðar að Asparskógum 27.
Bæjarráð fellst á að veita gjaldfrest með vísan til 5. mgr. 10. gr. gjaldskrár Akraneskaupstaðar nr. 710/2015 með skilyrði um að væntanleg gögn staðfesti fjármögnun.

12.Markaðsstofa Vesturlands - ýmis mál

1401041

Með bréfi dagsett 1. mars 2016 óskaði bæjarráð eftir upplýsingum hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi um fjármögnun Markaðsstofu Vesturlands, m.a. hver er rekstrarkostnaður á ári og hvernig rekstrargjöld skiptast á milli sveitarfélaga sem eiga aðild að stofunni. Fyrir liggur svarbréf frá SSV, dagsett 22. mars sl.
Lagt fram.

13.Kvikmyndataka á Akranesi

1601446

Heimild vegna lágflugs vegna kvikmyndatöku á Akranesi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu bæjarstjóra.

14.Fyrirtækjakönnun SSV 2016

1603134

Niðurstöður fyrirtækjakönnunar SSV fyrir árið 2016.
Lagðar fram.

15.Fjölþætt heilsurækt í sveitarfélögum

1602245

Erindi Janusar Heilsueflingu slf. um verkefnið Fjölþætt heilsurækt í sveitarfélögum - Leið að farsælli öldrun.
Bæjarstjóra falið að ganga frá viljayfirlýsingu um þátttöku í verkefninu.
Kostnaði, allt að 1 mkr. verður ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.

16.Ungmennamót í Bamble í Noregi 2016 og vinabæjarmót á Akranesi 2017

1603152

Styrkumsókn frá Norræna félaginu á Akranesi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um umfang og kostnað vegna viðburðanna.

17.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - greiðsluframlag

1603113

Greiðsluframlag til Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.
Lagt fram til kynningar.

18.Gullfoss AK 2854 hvalaskoðunarskip - rekstrarleyfi fyrir veitingastað

1603077

Erindi Sýslumannsins á Akranesi þar sem óskað er eftir umsögn Akraneskaupstaðar vegna rekstrarleyfis fyrir veitingastað á hvalaskoðunarskipinu Gullfoss.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

19.SSV - aðalfundarboð 2016

1603153

Boð á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi þann 6. apríl næstkomandi á Hótel Hamri, Borgarnesi.
Bæjarráð samþykkir að á fundinn fari eftirtaldir fulltrúar:
Valdís Eyjólfsdóttir, Rakel Óskarsdóttir, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, Ingibjörg Valdimarsdóttir og Jóhannes Karl Guðjónsson.

20.Sorpurðun Vesturlands - aðalfundur 2016

1603107

Boð á aðalfund Sorpurðunar Vesturlands sem haldinn verður 6. apríl næstkomandi kl. 13:00 að Hótel Hamri Borgarnesi.
Bæjarráð samþykkir að á fundinn fari Sævar Jónsson.

21.Lánasjóður sveitarfélaga ohf - aðalfundur 2016

1603135

Boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður föstudaginn 8. apríl næstkomandi kl. 15:30 á Grand Hótel Reykjavík.
Bæjarráð samþykkir að formaður bæjarráðs sæki fundinn fyrir hönd Akraneskaupstaðar.

22.Orkuveita Reykjavíkur og dótturfélög - aðalfundur 2016

1603145

Boð á aðalfund Orkuveitu Reykjavíkur og þriggja dótturfélaga sem haldinn verður 18. apríl næstkomandi kl. 13:00 í Iðnó við Vonarstræti.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri sæki aðalfund Orkuveitu Reykjavíkur f.h. Akraneskaupstaðar.

23.Ársþing ÍA 2016

1603117

Ársþing Íþróttabandalags Akraness verður haldið þann 7. apríl næstkomandi.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 21:35.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00