Fara í efni  

Bæjarráð

3254. fundur 28. maí 2015 kl. 16:00 - 17:40 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Ársreikningur 2014 - endurskoðun

1501104

Árituð endurskoðunarskýrsla vegna ársins 2014.
Lögð fram.

2.Sorphirðugjöld 2015

1504040

Endurákvörðun sorpgjalda með hliðsjón af úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Með hliðsjón af úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 27. mars síðastliðnum samþykkir bæjarráð að endurákvarða sorpgjöld vegna ársins 2014.
Bæjarráð samþykkir að tekjuafgangur málaflokksins samkvæmt ársreikningi 2014 komi að fullu til lækkunar gjaldanna sem felur í sér lækkun um 8,04% auk þess sem gæta þarf ákvæða laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda við framkvæmd endurgreiðslunnar til gjaldenda.
Fjárhæð sorphreinsunargjaldsins verði kr. 14.799 í stað kr. 16.095 sem er lækkun um kr. 1.296 og fjárhæð sorpeyðingargjaldsins verði kr. 12.620 í stað kr. 13.725 sem er lækkun um kr. 1.105.
Ákvörðun bæjarráðs verði send til umsagnar Heilbrigðisnefndar Vesturlands samkvæmt 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Fjárhæðin samtals kr. 6.178.371 ásamt vöxtum verði tekin af handbæru fé.

3.Grundaskóli - bætt aðstaða fyrir nemendur

1505117

Erindi nemendafélags Grundaskóla um bætta aðstöðu í unglingadeild.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og óskar eftir umsögn skólastjórnenda um málið.

4.Félag slökkviliðsmanna á Akranesi - ums. um styrk vegna ferðar til Hannover

1505035

Erindi félags slökkviliðsmanna á Akranesi um styrk vegna ferðar til Hannover.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk, kr. 150.000 vegna fræðsluferðar slökkviliðsmanna til Hannover. Upphæðin verði tekin af lið 20830-4995, óviss útgjöld.

5.SSV - fyrirtækjakönnun

1412160

Niðurstaða fyrirtækjakönnunarinnar Glefsa sem framkvæmd er hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi lögð fram til kynningar.
Lögð fram til kynningar.

6.Styrkir vegna menningar-, íþrótta- og atvinnumála 2015 - seinni úthlutun

1503232

Tillögur skóla- og frístundaráðs og menningar- og safnanefndar um úthlutun styrkja 2015 til íþrótta-, atvinnu- og menningarmála.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 21. maí sl. úthlutun styrkja samtals kr. 1.820.000. Óskað er eftir samþykkt bæjarráðs vegna þriggja umsókna til viðbótar.
Bæjarráð samþykkir að veita eftirtöldum styrki:

Samkórinn Hljómar, kór félags eldri borgara á Akranesi, kr. 100.000
Karatefélag Akraness, kr. 35.000
Körfuknattleiksfélag Akraness,kr. 40.000

7.Sjómannadagurinn 2015

1503237

Erindi menningar- og safnanefndar þar sem óskað er eftir viðbótarframlagi að upphæð kr. 200.000 vegna sjómannadagsins.
Bæjarráð fagnar því að það verði dagskrá á Sjómannadaginn. Kostnaði vegna hátíðahaldanna verði mætt í liðnum hátíðarhöld og viðburðir 05770.

8.Fjólulundur 5-7, umsókn um lóð

1411182

Erindi Trésmiðjunar Akur ehf. þar sem óskað er eftir frest til 25. ágúst til þess að skila inn teikningum.
Bæjarráð samþykkir erindið.

9.Blómalundur 2-4, umsókn um lóð

1411181

Erindi Trésmiðjunar Akur ehf. þar sem óskað er eftir frest til 25. ágúst til þess að skila inn teikningum.
Bæjarráð samþykkir erindið.

10.Ægisbraut 21 - umsókn um byggingarlóð

1504103

Bæjarráð óskaði eftir því við skipulags- og umhverfisráð á fundi sínum þann 30. apríl sl. að lagt yrði mat á umsókn Miklagarðs ehf. um Ægisbraut 21 með tilliti til endurskoðunar á aðalskipulagi Akraness 2005-2017.
Þann 22. maí bókaði skipulags- og umhverfirráð eftirfarandi: ,,Skipulags- og umhverfisráð leggst gegn úthlutun lóða á Ægisbraut vegna yfirstandandi vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi Akraness".
Bæjarráð tekur undir bókun skipulags- og umhverfisráðs. Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

11.Ægisbraut 21 - umsókn um byggingarlóð

1504056

Bæjarráð óskaði eftir því við skipulags- og umhverfisráð á fundi sínum þann 30. apríl sl. að lagt yrði mat á umsókn Halla-Máls ehf. um Ægisbraut 21 með tilliti til endurskoðunar á aðalskipulagi Akraness 2005-2017.
Þann 22. maí bókaði skipulags- og umhverfirráð eftirfarandi: ,,Skipulags- og umhverfisráð leggst gegn úthlutun lóða á Ægisbraut vegna yfirstandandi vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi Akraness".
Bæjarráð tekur undir bókun skipulags-og umhverfisráðs. Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

12.Starfshópur um Sementsreit

1409162

Erindi starfshóps um Sementsreit þar sem lagt er til við bæjarráð að tillögur verði fengnar frá hönnuðum um rammaskipulag sementsreits á grundvelli greinargerðar sem þeir hafa lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að veita skipulags- og umhverfissviði heimild til að ganga til samninga við Kanon arkitekta, Ask arkitekta og Landmótun fyrir hönd starfshóps um sementsreit. Kostnaður, kr. 4.500.000 verði tekinn af liðnum önnur aðkeypt vinna 20830-4990.

13.Orkuveita Reykjavíkur - stöðuskýrsla

1505149

Rekstur Orkuveitu Reykjvíkur á fyrsta ársfjórðungi 2015.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundargerðir 2015 - starfshópur um Sementsreit

1501214

Fundargerð starfshóps um Sementsreit nr. 10 frá 18.05.2015.
Lögð fram.

15.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2015

1505022

Þriggja mánaða uppgjör Akraneskaupstaðar frá 1. janúar til 31. mars 2015 lagt fram.
Andrés Ólafsson fjármálastjóri og Sigmundur Ámundason deildarstjóri bókhaldsdeildar mæta á fundinn.
Bæjarráð þakkar fyrir ársfjórðungsyfirlitið. Reksturinn er í heild í samræmi við áætlanir að frátöldum lífeyrisskuldbindingum sem hafa hækkað umfram áætlun. Varðandi einstaka málaflokka þá þarf að rýna mjög vel útgjaldaþróunina á velferðar- og mannréttindasviði en útgjöld vegna málefna fatlaðra og vegna heimaþjónustu hafa hækkað meira en áætlun gerði ráð fyrir. Bæjarráð felur bæjarstjóra að greina ástæður útgjaldaaukningar á sviðinu í samráði við sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs.

16.Viðauki við fjárhagsáætlun 2015

1505141

Viðauki við fjárhagsáætlun 2015 lagður fram til samþykktar.
Andrés Ólafsson fjármálastjóri fer yfir viðaukann.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir fjóra fyrstu mánuði ársins og felur fjármálastjóra að ganga frá viðauka vegna maímánaðar fyrir næsta bæjarráðsfund.

Fundi slitið - kl. 17:40.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00