Fara í efni  

Bæjarráð

3060. fundur 07. janúar 2010 kl. 17:00 í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Guðný J. Ólafsdóttir fulltrúi deildarstjóra
Dagskrá

1.Strætisvagn Akranes-Reykjavík

812038

Nýr samningur Akraneskaupstaðar við Teit Jónasson um akstur milli Akraness og Reykjavíkur.


Bæjarráð samþykkir að vísa samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar og felur bæjarstjóra að setja inn tímamörk í 2. grein.

2.Hvalfjarðarsveit - samstarfssamningar

911055

Bréf Hvalfjarðarsveitar dags. 30. desember 2009, minnisblað framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu, bréf framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu dags. 21. desember 2009, minnisblað Framkvæmdaráðs dags. 18. desember 2009, minnisblað Dvalarheimilisins Höfða, minnisblað framkvæmdastjóra Skipulags- og umhverfisstofu dags. 7.1.2009, svar FEBAN dags. 7.12.2009, lagt fram.



Bæjarráð Akraneskaupstaðar vísaði erindi Hvalfjarðarsveitar til umsagna þeirra aðila sem fara með einstök málefni samningsins milli sveitarfélaganna. Akraneskaupstaður kallaði eftir áliti vegna allra samninga. Skammt er í sveitarstjórnarkosningarog því telur bæjarráð Akraness eðlilegt að vísa endurskoðun samninganna til nýrra sveitarstjórna á næsta kjörtímabili. Umsagnir og athugasemdir fylgja bókun bæjarráðs til Hvalfjarðarsveitar.

3.Frestir lóðarhafa til framkvæmda.

912090


Afgreiðslu frestað.

4.Fjárhagsáætlun 2009 - endurskoðun.

904012


Fjármálastjóri gerði grein fyrir endurskoðaðri fjárhagsáætlun v/2009.


Einnig var lagt fram yfirlit um bókhaldslega stöðu eftir ellefu mánuði ársins 2009. Bæjarráð vísar afgreiðslu endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Fjárhagsáætlun 2010.

911070


Lögð fram gögn frá Fjölskyldu- og Framkvæmdaráði ásamt gögnum frá Akranesstofu og Skipulags og umhverfisnefnd. Bæjarráð vísar þessum gögnum til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010 sem verður miðuð við 1. mars n.k. Þá verði tekin til skoðunar þau atriði sem ekki eru þegar komin inn í áætlun vegna ársins 2010. Umrædd gögn voru rædd við einstaka aðila m.a. formenn framkvæmda- og fjölskylduráðs fyrir afgreiðslu fjárhagsáætlunar, en á það er fallist að mistök hafi verið að leggja gögnin ekki sérstaklega í fram bæjarráði.

6.Endurfjármögnun lána.

906083

Gögn um tölvusamskipti bæjarstjóra og Lánasjóðs sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

7.Prókúra Akraneskaupstaðar

1001023

Bæjarráð áréttar að bæjarstjóri fer með prókúru Akraneskaupstaðar í samræmi við 55. grein sveitarstjórnarlaga.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00