Bæjarráð
1.Langisandur ehf. beiðni um viðræður við bæjarráð
1003189
2.Fjárhagsáætlun 2010 - endurskoðun
1004064
Andrés Ólafsson fjármálastjóri kynnti niðurstöðu endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar eftir fyrstu 3 mánuði ársins. Ljóst er að niðurstaða er í samræmi við væntingar en svigrúm er þröngt til aukningar fjármuna umfram áætlun. Samþykkt að vísa endurskoðari áætlun til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar.
3.Vinnuskóli Akraness - starfsemi sumarið 2010
1001031
Bæjarráð samþykkir röksemdir rekstrarstjóra fyrir aukinni fjárveitingu uppá 1.5 millj. kr. og leggur til að henni verði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar og endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010 auk þess verði 1 millj. kr. tekin úr búnaðarkaupasjóði.
4.Byggðasafnið - geymslur
1004036
Erindinu vísað til framkvæmdaráðs.
5.Garðatún - útivistarsvæði
1004043
Bæjarráð felur verkefnastjóra að vinna áfram að hugmyndinni í samráði við Skipulags- og umhverfisstofu.
6.Hjólreiðabærinn Akranes
1004044
Bæjarráð felur verkefnisstjóra að vinna áfram með hugmyndina.
7.Jaðarsbakkasundlaug - nýjar rennibrautir
1004045
Bæjarráð telur verkefnið ekki tímabært.
8.Bókasafn - starfsskipulag
1003173
Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarbókaverði að auglýsa eftir starfsmanni sem hafi almenna menntun.
9.Byggðasafn - starfsmannamál
1004067
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
10.Námskeið fyrir fyrirtæki og frumkvöðla
1004060
Bæjarráð samþykkir erindið og vísar kostnaði til framlags vegna atvinnuátaks sem samþykkt var í fjárhagsáætlun.
11.Byggðasafnið í Görðum - rekstur
811087
Lagt fram.
12.Málefni fatlaðra, flutningur yfir til sveitarfélaga.
905030
Lagt fram.
13.Orkuveita Reykjavíkur - aðilaskipti
1004062
Lagt fram.
14.Innherjar - fjárhagsleg tengsl
1004048
Lagt fram
15.Ályktun frá Lögreglufélagi Vesturlands
1004054
Bæjarráð tekur undir áhyggjur Lögreglufélags Vesturlands og telur að fyrst og fremst verði að tryggja á sem bestan hátt öryggi íbúa landshlutans.
16.Landsbanki Íslands hf. - Afleiðu- og gjaldeyrisviðskipti
902031
Bæjarstjóri lagði fyrir til kynningar samninginn undirritaðan í samræmi við ákvörðun síðasta bæjarstjórnarfundar 13.apríl s.l.
17.Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - rekstur íþróttavallar.
912005
Bæjarráð samþykkir erindið og vísar erindinu til næstu endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
18.Merking gatna 2010.
1003186
Afgreiðslu frestað.
19.Menningarráð Vesturlands - fundarboð
1003202
Bæjarráð samþykkti að forseti bæjarstjórna færi með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum.
20.Atvinnuátaksnefnd - fundargerðir 2010.
1001149
Lagðar fram.
21.Faxaflóahafnir sf. - Fundargerðir 2010.
1002157
Lagðar fram.
22.Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar-Fundargerð
1004006
Lögð fram.
23.Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - fundargerð
1004066
Lögð fram.
Fundi slitið.
Viljayfirlýsing um samstarf lögð fram á fundinum.