Fara í efni  

Bæjarráð

3037. fundur 22. maí 2009 kl. 12:00 í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Ragnheiður Þórðardóttir deildarstjóri þjónustudeildar
Dagskrá

1.Ársreikningur 2008 - Aðalsjóður.

905073

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Ársreikningur 2008 - Eignasjóður.

905074

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

3.Ársreikningur 2008 - Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf. og slf.

905065

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

4.Ársreikningur 2008 - Gáma.

905075

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

5.Ársreikningur 2008 - Byggðasafnið í Görðum.

905076

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

6.Ársreikningur 2008 - samantekinn.

905077

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

7.Ársreikningur 2008 - Lífeyrissjóður.

905078

Til viðræðna mættu Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarskrifstofu JÞH, Sigmundur Ámundason, deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri.

Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

8.Fjármálastjórn Akraneskaupstaðar.

905083

Bæjarráð Akraness gerir eftirfarandi tillögur um breytingar á fjármálastjórn Akraneskaupstaðar:









Bæjarráð samþykkir að framkvæmdastjórum stofa verði falið að leggja fyrir viðkomandi ráð rekstraruppgjör stofa og þeirra deilda sem undir þeim starfa. Rekstraruppgjörin skulu birt fyrir hverja deild í samanburði við áætlun tímabilsins og frávik á rekstri einstakra deilda umfram 2% skýrð í skriflegri greinargerð til viðkomandi ráðs. Rekstraruppgjör og greinargerðir skulu lögð fyrir viðkomandi ráð innan 30 daga frá lokum uppgjörsmánaðar og jafnframt send bæjarráði. Næsta uppgjörstímabil skal ná yfir mánuðina janúar til og með mars 2009 og síðan mánaðarlega frá þeim tíma.




Bæjarráð samþykkir að frá og með 1. júní n.k. verði samþykkt útgjalda hjá Akraneskaupstað breytt á þann veg að auk samþykktar forstöðumanns viðkomandi stofu, deildar eða stofnunar þarf jafnframt samþykki fjármálastjóra Akraneskaupstaðar til að reikningur verði samþykktur af hálfu kaupstaðarins.




Bæjarráð ítrekar að framkvæmdastjórum stofa og öðrum ábyrgðaraðilum deilda og stofnana Akraneskaupstaðar er með öllu óheimilt að fara fram úr samþykktri fjárhagsáætlun og ber í öllu að starfa samkvæmt settum reglum um starfsskyldur stjórnenda Akraneskaupstaðar og ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjármál sveitarfélaga.


9.Ályktun - fjármálastaða sveitarfélaga.

905080




Bæjarráð Akraness beinir þeim tilmælum til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að sambandið beiti sér fyrir lækkun vaxta lána hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Jafnframt verði lánstími lána sjóðsins lengdur til að létta greiðslubyrði sveitarfélaga.


Bæjarráð Akraness krefst þess að ríkisstjórn Íslands beiti sér fyrir verulegri lækkun stýrivaxta og að vaxtamunur í samanburði við helstu viðskiptalönd Íslands lækki verulega. Þá verði ríkisbönkum og fjármálastofnunum gert skylt að leysa úr bráðavanda sveitarfélaganna m.a. með lengingu lána.


Fjöldi heimila, fyrirtækja og sveitarfélaga eiga nú í miklum erfiðleikum vegna ofurhárra vaxta, verðtryggingar og gengishækkunar lána. Víða í samfélaginu blasa við fjöldauppsagnir og gjaldþrot fyrirtækja verði ekkert að gert.


Bæjarstjóra er falið að fylgja málinu eftir.

10.Innkaupastefna Akraneskaupstaðar.

811111

Bréf framkvæmdaráðs, dags. 20.05.2009, þar sem óskað er eftir að bæjarráð skilgreini viðmiðunarupphæðir í reglunum áður en innkaupastefna Akraneskaupstaðar er tekin fyrir að nýju.







Bæjarráð samþykkir að fela Framkvæmdastofu að yfirfara texta í drögum að nýjum innkaupareglum áður en bæjarráð tekur ákvörðun um viðmiðunarfjárhæðir.

11.Bíóhöllin - rekstur.

905081

Bréf stjórnar Akranesstofu, dags. 20.05.2009, varðandi rekstur Bíóhallarinnar.
Bæjarráð samþykkir erindið.

12.Sumarvinna fyrir 18-20 ára - átaksverkefni 2009.

905082

Bréf stjórnar Akranesstofu, dags. 20.05.2009, varðandi sumarvinnu fyrir 18-20 ára, ásamt minnisblaði með hugmyndum um átaksverkefni fyrir þennan aldur.


Lagt fram.

13.Viskubrunnur - undirbúningur

901156

Bréf stjórnar Akranesstofu, dags. 20.05.2009, varðandi næstu skref verkefnisins ?Viskubrunnur í Álfalundi".




Afgreiðslu frestað.

14.Afskriftir krafa Akraneskaupstaðar árið 2008.

905072

Bréf fjármálastjóra, dags. 12.5.2009, þar sem gerð er tillaga til afskriftar krafa Akraneskaupstaðar undir árinu 2008 (trúnaðarmál).


Bæjarráð samþykkir afskriftirnar skv. tillögu fjármálastjóra.


Fjármálastjóra er falið að gera drög að nýjum innheimtureglum og leggja fyrir bæjarráð.

15.Samkeppni um nafn á hringtorgum.

905071

Tillaga að samkeppni um nafn á hringtorgum Akraneskaupstaðar.




Bæjarráð Akraness samþykkir að efna til samkeppni um nafn á hringtorgum á Akranesi. Um er að ræða eftirfarandi hringtorg:



  • Við innkeyrsluna í bæinn á Akranesvegi og Þjóðbraut

  • Á gatnamótum Þjóðbrautar og Innnesvegar

  • Á gatnamótum Innnesvegar og Garðagrundar

  • Á gatnamótum Esjubrautar og Kalmansbrautar

  • Á gatnamótum við Skagabraut, Faxabraut, Þjóðbraut, Stillholt og Garðabraut

Fyrstu verðlaun skulu vera kr. 50.000, önnur verðlaun kr. 25.000 og þriðju verðlaun kr. 10.000. Á skilinn er réttur til að nota einstakar tillögur að hluta eða í heild. Skipulags- og umhverfisnefnd er falið að annast framkvæmd keppninnar og skal niðurstaða liggja fyrir í lok júnímánaðar.

16.Byggðasafnið í Görðum - útvistun

812054

Bréf Þjóðminjasafnsins og safnaráðs, dags. 18.05.2009. Umsögn vegna útvistunar Byggðasafnsins í Görðum.



Lagt fram.


17.Skagaver - uppgjör framkvæmda.

903119

Afrit af bréfi LEX lögmannsstofu, dags. 04.05.2009, varðandi kröfur Skagavers á hendur Akraneskaupstað vegna framkvæmda í kringum fasteign Skagavers á Miðbæjarreit.

Bæjarráð felur Landslögum að svara umræddum kröfum.

18.Vesturgata 97 - lóðarstærð

807036

Stjórnsýslukæra Úrskurðanefndar skipulags- og byggingamála, dags. 12.05.2009, vegna afstöðu kaupstaðarins til skráningar lóðarinnar að Vesturgötu 97, Akranesi.

Bæjarráð felur framkvæmdastjóra Skipulags- og umhverfisstofu að svara bréfritara.

19.Suðurgata 32 - farfuglaheimili - nýtt rekstrarleyfi.

905053

Bréf Sýslumannins á Akranesi, dags. 13.05.2009, varðandi beiðni um nýtt rekstrarleyfi fyrir farfuglaheimili að Suðurgötu 32.


Bæjarráð gerir ekki athugasemd við rekstrarleyfið.

20.Strætómál.

812038

Bréf Hvalfjarðarsveitar, dags. 06.05.2009, varðandi afgreiðslu sveitarstjórnar varðandi strætómál. Sveitarstjórn samþykkti að segja upp samningi við Strætó bs.

Lagt fram.

21.Framlög 2009 - Jöfnunarsjóður.

903043

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 08.05.2009. Tilkynning um endanlega úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2009.

Lagt fram.

22.Íþróttaþing ÍSÍ - ályktanir.

905069

Bréf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, dags. 29.04.2009, varðandi ályktanir sem samþykktar voru á 69. íþróttaþingi ÍSÍ.




Bæjarráð Akraness þakkar framkomnar ábendingar.


Framlag til æskulýðsstarfs hefur verið fjórfaldað á Akranesi í formi frístundaávísana til ungmenna úr kr.5000 í kr. 20.000 til ástundunar íþrótta- og félagsstarfs frá árinu 2008 til ársins 2009, í ljósi þess efnhagsástands sem nú ríkir til eflingar fjölþættrar starfsemi umgmenna. Fjölskylduráð úthlutaði 18. maí sl., samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Akraness í fjárhagsáætlun 2009, að auki við umrætt framlag sérstaklega 14 milljónum til eflingar starfs á vegum íþróttafélaga og frjálsra félagasamtaka sem sinna æskulýðsverkefnum.

23.Álfasala SÁÁ 2009.

905063

Bréf SÁÁ, dags. maí 2009, þar sem óskað er eftir stuðningi í formi kaupa á álfinum. Söfnunarfé rennur til rekstrar unglingadeildar að Vogi og vinnu að forvörnum.


Lagt fram.

24.Drög að dagskrá bæjarstjórnar 2009.

901046

Dagskrá 1075. fundar bæjarstjórnar.


Lögð fram.

25.Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2008-2020.

904116

Fyrir fundinum liggur fundargerð stjórnar sorpsamlaganna frá 12.02.2009.


Lögð fram.

26.Faxaflóahafnir sf. - fundargerðir 2009.

901068

Fyrir fundinum liggur fundargerð 61. fundar stjórnar Faxaflóahafna sf. frá 08.05.2009.

Lögð fram.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00