Fara í efni  

Bæjarráð

3046. fundur 27. ágúst 2009 kl. 16:00 í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Ragnheiður Þórðardóttir deildarstjóri þjónustudeildar
Dagskrá

1.Endurfjármögnun lána.

906083

Tillaga um aðgerðaáætlun vegna skuldastöðu. Tillögunni var vísað í bæjarráð til frekari umfjöllunar úr bæjarstjórn 25. ágúst sl.








Verið er að vinna í þeim þáttum sem tillagan er um m.a. breytilegum lánamöguleikum, ásamt með hugmyndum til lengri tíma að fjárhagsáætlun svo sem unnt er, í ljósi mikillar óvissu um fjárhagsstöðu þjóðarinnar. Bæjarstjóri og fjármálastjóri munu gera grein fyrir stöðu mála á næstunni.



Bæjarráð Akraness beinir þeim tilmælum til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að taka upp viðræður við ríkisvaldið um samræmdar aðgerðir vegna slæmrar fjárhagsstöðu fjölmargra sveitarfélaga.

2.Endurfjármögnun lána.

906083

Bréf MP Banka, barst í tölvupósti dags. 26.08.2009, þar sem boðin er fram aðstoð Fyrirtækjaráðgjafa MP Banka vegna erfiðrar skuldastöðu Akraneskaupstaðar.




Málið kynnt fyrir bæjarráði, bæjarstjóri gerði grein fyrir möguleikum sem verið er að kanna hvort falli að áætlanagerð til lengri tíma fyrir Akraneskaupstað.

3.Samningar á vegum Akraneskaupstaðar.

902172

Minnisblað bæjarstjóra og fjármálastjóra varðandi endurskoðun samninga á vegum Akraneskaupstaðar.




Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra falin afgreiðsla málsins í samræmi við umræður á fundinum.

4.Banka- og tölvuþjónusta - útboð

906033



Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu. Að athuguðu máli samþykkir bæjarráð að falla frá ákvörðun um útboð á bankaþjónustu að svo stöddu. Ákvörðun varðandi útboð á tölvuþjónustu frestað.

5.Strætisvagn innanbæjar - útboð

908106






Bæjarráð felur Skipulags- og umhverfisstofu ásamt Framkvæmdastofu að útbúa útboðsgögn um akstur strætó innanbæjar og leggja fyrir bæjarráð.

6.Strætóskýli

903046

Kostnaðaráætlanir fyrir stoppistöðvar fyrir innanbæjarstrætó og sleppistæði.




Bæjarráð samþykkir að akstursleið verði breytt samkvæmt fyrirliggjandi tillögu. Starfsmönnum Framkvæmdastofu falið að færa skilti stoppistöðva. Bæjarráð heimilar ekki aðrar framkvæmdir.

7.Uppsögn greiðslu fastrar yfirvinnu.

908086

Bréf Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, dags. 26.08.2009. Félagið vill leggja áherslu á að uppsögn á ráðningakjörum félagsmanna hjá Akraneskaupstað verði tímabundnar eins og fram kom í fyrri uppsögn sem á að taka gildi 1. okt. nk.


Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi uppsögn á yfirvinnu starfsmanna eins og samþykkt var á bæjarstjórnarfundi 19. ágúst og 25 ágúst. s.l.

8.Jaðarsbakkalaug - brautarlínur.

908104

Bréf formanns Sundfélags Akraness, dags. 25.08.2009, þar sem lagt er til að úttekt verði gerð á brautarlínum í Jaðarsbakkalaug og að keyptar verði æfingarlínur til að komist verði hjá kostnaðarsömum innkaupum næsta vor.



Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til Framkvæmdastofu.

9.Strætómál.

812038

Bréf Axels Freys Gíslasonar, nemanda í HÍ, dags. 25.08.2009. Skorað er á Akraneskaupstað til að koma til móts við námsmenn og bjóða upp á nemakort, sambærileg þeim sem boðin eru í Reykajvík og nágrenni.




Akraneskaupstaður greiðir verulega niður fargjöld milli Akraness og Reykjavíkur og getur því ekki orðið við óskum um frekari lækkun.



10.SSV - aðalfundarboð 2009

906149

Aðalfundarboð Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, barst í tölvupósti 25.08.2009. Aðalfundurinn verður haldinn í Reykholti 11.- 12. september nk. og hefst hann kl. 10:00.


Lagt fram.

11.Aukning stöðugilda sérdeildar Brekkubæjarskóla skólaárið 2009-2010.

908056

Bréf fjölskylduráðs, dags. 27. ágúst 2009, þar sem mælt er með að sérdeild Brekkubæjarskóla fái 4 mkr. viðbótar fjárhæð vegna næsta skólaárs.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00