Bæjarráð
1.Apótekarinn Akranesi - opnunartími
1103129
2.Stjórnsýslukæra - Ráðning í stöðu kennara
1009154
Lagt fram.
3.Endurnýjun á tölvu
1103153
Bæjarráð samþykkir erindið. Fjárveiting komi úr tækjakaupasjóði.
4.Starfshópur um framkvæmdasamninga og/eða félagsaðstöðu við félagasamtök
1101010
Bæjarráð samþykkir umbeðna frestun. Fundargerðirnar lagðar fram.
5.Starfshópur um átak í nýsköpunar- og atvinnumálum.
1012103
Bæjarráð samþykkir umbeðna frestun og tillögur starfshópsins eins og þær eru lagðar fram. Fundargerðirnar lagðar fram.
6.Starfshópur um ferðatengda þjónustu
1101008
Bæjarráð samþykkir frestun til 1. maí 2011.
7.Strætó bs. - áframhaldandi samstarf
1103168
Bæjarráð samþykkir erindið.
8.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.
1101181
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.Kútter Sigurfari
903133
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt formanni starfshópsins að kynna skýrsluna fyrir ráðuneytinu og leita eftir samþykki þess á þeim tillögum sem starfshópurinn leggur til.
10.Umhverfismál á Grundartanga - opinn kynningarfundur
1103142
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundinum.
11.Hýsing og rekstrarþjónusta fyrir Akraneskaupstað
1101160
Bæjarritari gerði grein fyrir stöðu málsins með vísan til samþykktar bæjarstjórnar í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Bæjarráð leggur áherslu á að vinnu við málið verði hraðað sem kostur er.
12.Atvinnuátaksmál 2011
1103014
Bæjarráð samþykkir heimild til allt að 50 starfa í atvinnuátaksverkefni. Lagt verði fyrir bæjarráð nánari áætlun um umfang verkefna og fjárhagsáætlun.
13.Skagaleikflokkurinn - húsnæðismál
1009139
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að veitt verði aukafjárveiting að fjárhæð 1.040.000 kr. vegna samningsins.
14.Kirkjubraut 39 - sjálfsafgreiðslustöð
1102290
Bæjarstjóri vék af fundi kl. 17:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla lögfræðilegs álits á hvort heimilt sé að setja bensínstöð á umrædda lóð í ljósi samþykkts skipulags.
Einar leggur áherslu á að það sé ekki vilji fyrir því að það rísi bensínstöð á Kirkjubraut 39 enda er skýrt tekið fram í deiliskipulagi frá 1990 að þar eigi ekki að vera bensínstöð. Þeir aðilar sem hafa hug á að reisa bensínstöðvar á Akranesi verði gert það kleift og þá á þeim svæðum og lóðum þar sem skipulag gerir ráð fyrir þeirri starfsemi.
15.Styrkbeiðni NFFA
1104021
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu með vísan til gildandi reglna.
16.Umsókn um styrk - Grundartangakórinn
1104022
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu með vísan til gildnadi reglna.
17.Bókasafn - fjárveiting til tækjakaupa
1104005
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
18.Starf skoðunarmanns Akraneskaupstaðar - ótímabundið leyfi.
1104023
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
19.Menningarráð Vesturlands fundargerðir 2011
1101174
Lögð fram.
20.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2010
1010035
Lögð fram.
21.Fundargerðir OR - 2011
1101190
Lagðar fram.
22.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2011
1102040
Lögð fram.
23.Sorpurðun Vesturlands - fundargerðir stjórnar
1103108
Lögð fram.
24.Þjóðaratkvæðagreiðsla 9. apríl 2011.
1103059
Bæjarráð samþykkir leiðrétta kjörskrá og felur bæjarstjóra undirritun og frágang hennar.
Fundi slitið - kl. 18:15.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindið.