Fara í efni  

Atvinnumálanefnd (2000-2008)

151. fundur 26. nóvember 2007 kl. 18:00 - 19:10

151. fundur atvinnumálanefndar var haldinn mánudaginn 26. nóvember 2007 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:00.

 

 

 Mættir voru:    Ásgeir Hlinason formaður

                         Björn Guðmundsson

                         Dagný Jónsdóttir

                         Haraldur Helgason.

 

 

Auk þeirra sátu fundinn þeir Tómas Guðmundsson, markaðsfulltrúi og Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari sem einnig ritaði fundargerð.

_____________________________________________________________

 

Fyrir tekið:

 

 

1.   Námskeið fyrir atvinnulífið.

Markaðsfulltrúi gerði grein fyrir hugmynd að samstarfi við fyrirtæki á Akranesi um námskeið fyrir starfsfólk fyrirtækja á Akranesi.  Gert er ráð fyrir að fyrsta námskeiðið yrði í desember n.k. og í framhaldi af því yrði lagt mat á þörf fyrir fleiri námskeið og þá hverskonar.  Markaðsfulltrúa falið að fylgja málinu eftir á grundvelli umræðna á fundinum.

 

2.   Fjárhagsáætlun 2008.

Bæjarritari gerði grein fyrir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2008.

 

3.   Önnur mál.

Rætt um leiðarkerfi Strætó bs. innan Akraness og möguleikar á breytingum á akstursleið út úr bænum.  

Atvinnumálanefnd leggur eindregið til við bæjarráð að skoðaður verði möguleiki á að hafa gjaldfrjálsan strætó innan bæjar.

 

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:10.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00