Fara í efni  

Atvinnumálanefnd (2000-2008)

96. fundur 19. febrúar 2002 kl. 18:00 - 19:50

96. fundur  atvinnumálanefndar var haldinn þriðjudaginn 19. febrúar 2002
í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:00.

Mættir voru: Guðni Tryggvason, formaður,
 Þórður Þ. Þórðarson,
 Ástríður Andrésdóttir,
 Elínbjörg Magnúsdóttir.

Auk þeirra Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari, sem einnig ritaði fundargerð.

Fyrir tekið:

1. Samráð Markaðsráðs Akraness og atvinnumálanefndar. Til viðræðna mætti stjórn MRA, þau Guðjón Brjánsson, Sigurður Guðni Sigurðsson, formaður,  Guðrún Gunnarsdóttir,  Kristín Ármannsdóttir , Ásta Gísladóttir og Ásmundur Ólafsson.
Rætt um samráð á milli Atvinnumálanefndar og Markaðsráðs á næstu mánuðum og misserum.  Atvinnumálanefnd fagnar enn og aftur stofnun Markaðsráðs og væntir þess að góð samvinna geti orðið á milli bæjaryfirvalda og Markaðsráðsins til hagsbóta fyrir fyrirtæki bæjarins og bæinn í heild sinni.

2. Önnur mál.
Rætt um ýmis mál.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:50.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00