Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
1. 2610-8211 - Breyting inni: Æðaroddi 40, 300 Akraneskaupstaður
Hallur Kristmundsson sækir um f.h eiganda að breyta brunaskilum í hesthúsi.
Afgreiðslu máls frestað. Athugsemdir sendar á aðalhönnuð.
2. 2610-8013 - Nýbygging: Elínarvegur 13A, 300 Akraneskaupstaður
Guðlaugur I. Maríasson sækir um f.h eiganda um að koma fyrir geymsluskúrum á lóð skv.
fyrirliggjandi aðaluppdráttum.
Afgreiðslu máls frestað. Athugasemdir sendar á aðalhönnuð
3. 2607-5514 - Breyting inni: Dalbraut 1, 300 Akraneskaupstaður
G. Oddur Víðisson sækir um f.h hönd eiganda Krónunar viðbótarbreytingar á núgildandi
byggingarheimild. Sótt er um að breyta skilgreindu eldhúsrými í Sushi eldhús. Jákvæð umsögn
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands liggur fyrir.
Byggingarfulltrúi samþykkir viðbótarbreytingar á aðaluppdráttum og skal það verða hluti af
núgildandi byggingarheimild.
4. 2610-8278 - Breyting inni: Jaðarsbakkar 2, 300 Akraneskaupstaður
Helgi Indriðason sækir um f.h Íþróttabandalag Akraneskaupstaðar um leyfi til að breyta rými 008 í
veitingasölu. Gólf verður steypt og veggir einangraðir. Salerni og ræstikompu verður komið upp
ásamt loftræsingu sem þjónar þessu rými. Ný aðkomuleið verður opnuð milli Akraneshallar og
Akraborgar.
Afgreiðslu máls frestað. Athugasemdir sendar á aðalhönnuð.





