Fara í efni  

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa

10. fundur 16. október 2026 kl. 10:00 - 10:30 Akur, Dalbraut 1
Starfsmenn
  • Anna María þráinsdóttir byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Anna María Þráinsdóttir byggingarfulltrúi

1. 2609-6966 - Breyting inni: Háteigur 6, 300 Akraneskaupstaður

Runólfur Sigurðsson f.h eiganda sækir um að gera breytingar innanhús þ.e að fjarlægja steypta veggi í kjallara og opna húsið frekar að innan. Málið var áður tekið fyrir á 8. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og var þá frestað vegna samþykki Minjastofnunar vantaði vegna aldurs byggingar. Samþykki Minjastofnunar liggur nú fyrir.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

 

2. 2603008 - Breyting inni: Kirkjubraut 2, 300 Akraneskaupstaður

Runólfur Sigurðsson sækir um f.h eiganda íbúðar 401 að skipta eigninni upp í tvær íbúðir. Erindið hefur verið grenndarkynnt og samþykkt í bæjarstjórn þann 22. september 2026. Málið var áður tekið fyrir á 9. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og var þá frestað. Uppfærðir aðaluppdrættir hafa nú verið lagðir inn.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

 

3. 2603005 - Breyting úti: Eyrarflöt 13, 300 Akraneskaupstaður

Guðgeir Svavarson sækir um f.h eiganda að setja svalir og nýjan útistiga á húsið. Að auki er fyrirhugað setja nýja klæðningu á húsið. Koma fyrir tveimur smáhýsum á lóðina og Saunaklefa. Erindið var grenndarkynnt og samþykkt í bæjarstjórn þann 25. ágúst 2026.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu