Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
|
1. 2601017 - Breyting inni: Bárugata 15, 300 Akraneskaupstaður Emil Þór Guðmundsson sækir um f.h eiganda að gera breytingar innanhús á Bárugötu 15. Sótt er um að gera 5 íbúðir í húsi skv. deiliskipulagi. Byggingarmagn eykst ekki við breytinguna. Athugasemdir við aðaluppdrætti hafa verið sendar á aðalhönnuð. Afgreiðslu máls frestað.
|
|
2. 2610-7244 - Breyting inni: Grenigrund 33, 300 Akraneskaupstaður Helgi Guðjón Bragason sækir um f.h eiganda um breytta notkun í bílskúr. Sótt er um að breyta hluta af bílskúr í snyrtistofu. Grenigrund 33 er á ódeiliskipulögðu svæði. Grenndarkynna þarf byggingarleyfið.
|
|
3. 2603008 - Breyting inni: Kirkjubraut 2, 300 Akraneskaupstaður Runólfur Sigurðsson sækir um f.h eiganda íbúðar 401 að skipta eigninni upp í tvær íbúðir. Erindið hefur verið grenndarkynnt og samþykkt í bæjarstjórn þann 22. september 2026. Athugasemdir við aðaluppdrátt hafa verið sendar á aðalhönnuð. Afgreiðslu máls er frestað.
|





