Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
|
1. 2609-6517 - Nýbygging: Skógarlundur 30, 300 Akraneskaupstaður Halldór Stefánsson sækir um f.h lóðarhafa að byggja einbýlishús með bílskúr að Skógarlundi 30 skv. framlögðum uppdráttum. Skráð stærð mannvirkis alls 196,5 fm . Athugasemdir við aðaluppdrætti verða senda á hönnuð. Afgreiðslu máls frestað.
|
|
2. 2609-6661 - Breyting úti: Höfðabraut 12, 300 Akraneskaupstaður Karl Jóhann Haagensen sækir um f.h eigandi að byggja svalir á Höfðabraut 12. Um endurbyggingu svala er að ræða. Burðarþolsuppdrættir lagðir fram. Útlitsbreyting frá eldri svölum er óveruleg. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
|
|
3. 2609-6771 - Nýbygging: Jörundarholt 1B, 300 Akraneskaupstaður Guðlaugur I Maríasson sækir um f.h lóðarhafa að byggja bílskúr við Jörundarholt 1B ásamt tengibyggingu á milli bílskúrs og íbúðarhúss. Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Byggingarleyfið þarf að grenndarkynna. Erindi er vísað áfram á skipulag.
|
|
5. 2605-4190 - Framhaldsmál - Háteigur 3 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi Runólfur Sigurðsson f.h lóðarhafa skilar inn tilkynningu um framkvæmdir undanskyldar byggingarleyfi. Sótt er um að klæða Háteig 3 að utan með álklæðningu skv. framlögðum teikningum. Samþykki meðeiganda í húsi liggur fyrir. Byggingaráfrom eru samþykkt í samræmi við mannvirkjalög 160/2010 og uppfylla grein 2.3.6 í byggingarreglugerð um tilkynningarskylda mannvirkjagerð
|





