Fara í efni  

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa

2. fundur 26. júlí 2026 kl. 10:00 - 11:00 Klöpp, Dalbraut 1
Starfsmenn
  • Anna María Þráinsdóttir byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Anna María Þráinsdóttir byggingarfulltrúi

1. 2606-4996 - Umsókn um stöðuleyfi

Katla Bjarnadóttir óskar eftir stöðuleyfi til að setja söluvagn við Stillholt 16-18 til móts við Útgerðina. Tilgangur vagnsins er að selja pylsur og gos um helgar fyrir utan hefðbundinn opnunartíma og eftir að viðburðum líkur.

Staðsetningu matarvagns er hafnað, lagt er til er að hann sé á þeim hluta lóðar þar sem áður hafa verið vagnar, á norðvesturhluta lóðarinnar. Byggingarfulltrúi vísar áfram til skipulags-og umhverfisráðs beiðni um opnunartíma vagnsins þar sem hann er utan hefðbundins opnunartíma veitinga-og skemmtistaða.

 

2. 2606-4991 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Sæmundur Víglundsson skilar inn tilkynningu f.h eiganda að Stekkjarholti 7 um tilkynningarskyldar framkvæmdir undanþegar byggingarleyfi. Tilkynningin snýr að nýklæðningu á þegar byggðu mannvirki skv. framlögðum aðaluppdráttum.

Byggingaráfrom eru samþykkt í samræmi við mannvirkjalög 160/2010 og uppfylla grein 2.3.6 í byggingarreglugerð um tilkynningarskylda mannvirkjagerð

 

3. 2604004 - Nýbygging: Höfðasel 15, 300 Akraneskaupstaður

Páll Poulsen sækir um f.h lóðarhafa á Höfðaseli 15 að byggja 122,5 fm starfsmannaaðstöðu á lóð skv. framlögðum teikningum

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu