Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
|
1. 2601039 - Breyting úti: Skagabraut 7, 300 Akraneskaupstaður Hjörleifur Sigurþórssonson sækir um f.h lóðarhafa að byggja þrjá kvisti á Skagabraut 7. Einn á norðurhlið og tvo á suður hlið. Að öðruleiti er húsinu ekki breytt. Skráð birt stærð eykst um 5,5 fm. Teikningar hafa verið grenndarkynntar. Grenndarkynning var samþykkt í bæjarstjórn þann 10.06.2026. Álit Minnjastofnunar liggur fyrir. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012.
|
|
2. 2605002 - Breyting inni: Hjarðarholt 6, 300 Akraneskaupstaður Runólfur Sigurðsson sækir um f.h lóðarhafa að fjarlægja burðarvegg úr stofu í íbúð 0101 skv. framlögðum teikningum. Samþykki húsfélags liggur fyrir. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012.
|
|
3. 2605-3994 - Nýbygging: Óðinsgata 5A, 300 Akraneskaupstaður Stefán Örn Stefánsson sækir um f.h lóðarhafa að reisa smádreifistöð fyrir rafmagn á lóðinni Óðinsgötu 5A skv. framlögðum teikningum. Framkvæmd þessi fellur undir Tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarleyfi skv. gr. 2.3.6 í byggingarreglugerð 112/2012. Áform eru samþykkt.
|
|
4. 2605-3821 - Breyting úti: Bjarkargrund 24, 300 Akraneskaupstaður Valur Þór Sigurðsson sækir um f.h lóðarhafa um byggingarleyfi á áðurgerðum framkvæmdum innanhús ásamt endurbyggingu á sólskála. Að auki er sótt um að síkka glugga og setja rennihurð á suðurhlið. Útlitsbreyting er metin óveruleg skv. gr. 2.3.4 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarheimild verður gefið út að uppfylltum skilyrðum í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
|
|
5. 2605-4071 - Breyting úti: Baugalundur 20, 300 Akraneskaupstaður Björgvin Snæbjörnsson sækir um f.h lóðarhafa að byggja þakskýli yfir verönd á Baugalundi 20 skv. framlögðum teikningum. Mannvirkið er innan byggingarreits hússins. Útlitsbreyting er metin óveruleg skv. gr. 2.3.4 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarheimild verður gefið út að uppfylltum skilyrðum í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
|
|
6. 2605-4025 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi Ómar Líndal Marteinsson f.h lóðarhafa skilar inn tilkynningu um framkvæmdir undanskyldar byggingarleyfi. Sótt er um að klæða Laugarbraut 11 að utan með álklæðningu skv. framlögðum teikningum. Byggingaráfrom eru samþykkt í samræmi við mannvirkjalög 160/2010 og uppfylla grein 2.3.6 í byggingarreglugerð um tilkynningarskylda mannvirkjagerð |





