Fara í efni  

Æskulýðs- og félagsmálaráð (2000-2002)

618. fundur 19. febrúar 2002 kl. 08:00 - 09:30

618. fundur æskulýðs- og félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 19 . febrúar 2002 og hófst hann kl. 8:00.

Mættir voru: Inga Sigurðardóttir,
 Oddný Valgeirsdóttir,
 Pétur Svanbergsson,
 Tryggvi Bjarnason,
 Sæmundur Víglundsson.

Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir og Sveinborg Kristjánsdóttir félagsráðgjafi ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Oddný Valgeirsdóttir.

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
 2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3. Kvikmyndaeftirlit
Æskulýðs- og félagsmálaráð ræddi um ítrekuð brot á lögum um kvikmyndaeftirlit í Bíóhöllinni.

4. Stjórnskipulag Akraneskaupstaðar
Lagt fram bréf bæjarráð dags. 7. febrúar 2002 varðandi skipurit Akraneskaupstaðar.

5. Launakönnun PwC
Megin niðurstaða launakönnunarinnar er að lítill munur er á grunnlaunum kvenna og karla en þegar heildarlaun eru skoðuð er óútskýrður munur 16% körlum í vil. Æskulýðs- og félagsmálaráð tekur undir tillögur PwC og leggur sérstaka áherslu á að gerðar verði samræmdar starfslýsingar, kerfisbundnar launakannanir verði gerðar annað hvert ár og markaðar verði skýrar vinnureglur varandi launasetningar.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 9:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00