Fara í efni  

Æskulýðs- og félagsmálaráð (2000-2002)

616. fundur 22. janúar 2002 kl. 08:00 - 09:30

616. fundur æskulýðs- og félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 22 . janúar 2002 og hófst hann kl. 8:00.

Mættir voru: Inga Sigurðardóttir,
 Oddný Valgeirsdóttir,
 Sæmundur Víglundsson.
 Heiðrún Janusardóttir
 Tryggvi Bjarnason

Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir og Sveinborg Kristjánsdóttir félagasráðgjafi ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Oddný Valgeirsdóttir.

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Fjárhagsaðstoð
Tilkynning um hækkun á kvarðaaðstoð um 8,5% í samræmi við hækkun á bótum Tryggingastofnunar ríkisins frá 1. janúar 2002. Einstaklingskvarði eftir hækkun er kr. 71.758,-.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3. Liðveisla
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

4. Foreldrahúsið- Vímulaus æska
Akraneskaupstaður og Foreldrahúsið- Vímulaus æska hafa gert með sér samstarfssamning. Ráðgjafar foreldrahússins verða fyrst til viðtals á Akranesi þann 6. febrúar næstkomandi.
5. Félagsstarf eldri borgara á Akranesi
Kynntur samningur FEBAN og Akraneskaupstaðar.
6. Málþing um fjárhagsaðstoð í velferðarsamfélagi
Fjárhagsaðstoð í velferðarsamfélagi, málþing föstudaginn 1. febrúar 2002. Æskulýðs- og félagsmálaráðs óskar eftir leyfi bæjarráðs að nefndarmenn sæki málþingið.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 9:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00