Fara í efni  

Æskulýðs- og félagsmálaráð (2000-2002)

576. fundur 04. apríl 2000 kl. 08:00 - 09:30
576. fundur æskulýðs- og félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 4. apríl 2000 og hófst hann kl. 8:00.

Mættir voru: Inga Sigurðardóttir, formaður,
Tryggvi Bjarnason,
Oddný Valgeirsdóttir,
Pétur Svanbergsson,
Sæmundur Víglundsson

Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir og félagsráðgjafi, Sveinborg Kristjánsdóttir, sem einnig ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritar Oddný Valgeirsdóttir.

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Framfærsla
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3. Húsnæðismál ? leiguíbúðir Akraneskaupstaðar
Æskulýðs- og félagsmálaráð lýsir yfir miklum áhyggjum af ástandinu á leiguíbúðamarkaðnum í bænum. Samkvæmt upplýsingum frá félagsmálastjóra er mikil þörf á nýjum leiguíbúðum og skorar æskulýðs- og félagsmálaráð á bæjaryfirvöld að koma með lausnir hið bráðasta (sbr. greinargerð félagsmálastjóra).

4. Íþrótta- og leikjanámskeið á Akranesi.
Kynnt drög að samningi við Íþróttabandalagið varðandi íþrótta- og leikjanámskeið.

5. Endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi
Málið rætt og vísað til þriðju umræðu.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 9:30.





   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00