Fara í efni  

Systurnar sjö eftir Guðlaug Bjarnason

„Systurnar sjö“ er verk unnið úr járni og er það að finna inni við tjörnina í Garðalundi. Verkið er eftir Guðlaug Bjarnason (Gulla, f.1950) með ættir að rekja til Suðurlands. Haft er fyrir satt að nafn verksins vísi til birkihrísla í Þórsmörk með sama nafni og að það tengist ekki því að Guðlaugur átti – og á – sjö systur!

Listamaðurinn mun ekki vilja að verkið sé varið eða verndað gegn náttúruöflunum og væntir þess að það fá að forganga í íslenskri náttúru vorri.

Guðlaugur stundaði nám við Handíða- og myndlistaskóla Íslands og þar hefur hann haldið fyrirlestra um vinnslu listaverka í margskonar formi. Hann nam einnig í Skotlandi og Þýskalandi.

Guðlaugur hefur haldið einkasýningar hérlendis og samsýningar utanlands og færði hann Listasafni Akraness – Akranesbæ, þetta verk árið 1994 í minnigu bróður síns Höskuldar Heiðars Bjarnasonar.

Staðsetning

Við tjörnina í Garðalundi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00