Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

214. fundur 21. nóvember 2023 kl. 15:15 - 18:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.Dalbraut 6 - leiguíbúðir fyrir aldraða

2004058

Samkomulag milli Akraneskaupstaðar og Leigufélags aldraðra er í burðarliðnum um útleigu íbúða. Fram komu upplýsingar um áætlað leiguverð íbúðanna sem lagt er fram til kynningar og umræðu í ráðinu.
Velferðar- og mannréttindaráð lýsir yfir vonbrigðum með það leiguverð sem Leigufélag aldraðra hefur upplýst um í leiguíbúðum fyrir aldraðra að Dalbraut 6. Vísar velferðar- og mannréttindaráð til upplýsinga um samanburð við fermetraverð annarra leigufélaga, en það fermetraverð sem Leigufélag aldraðra stillir fram er töluvert hærra en annarra óhagnaðar- og hagnaðardrifinna leigufélaga.

Velferðar- og mannréttindaráð hvetur Leigufélag aldraðra til að endurskoða leiguverðið og að það verði til samræmis við leiguverð annarra óhagnaðardrifinna leigufélaga með starfsemi á Akranesi.

Hrefna Rún Ákadóttir félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.

2.Grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks

2311190

Grænbók um málefni innflytjenda lögð fram til kynningar. Byggir Grænbókin á greiningu á stöðu innflytjenda útfrá fimm meginstoðum; Samfélagið, fjölskyldu- og heilbrigðismál, menntun, vinnumarkaður og flóttafólk. Grænbókin er liður í heildarstefnu stjórnvalda í málefnum útlendinga sem miðar að því að fólk sem sest hér að, hafi tækifæri til aðlögunar og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00