Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

186. fundur 16. ágúst 2022 kl. 16:00 - 18:15 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Svala Kristín Hreinsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Laufey Jónsdóttir verkefnisstjóri heimaþjónustu
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.Dagdvöl sérhæfð

2208078

Aðstandendur hafa óskað eftir samtali við velferðar- og mannréttindaráð um sérhæfða dagdvöl á Akranesi.
Á fundinn mættu fulltrúar aðstandenda fólks með heilabilun og Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili.
Umræður um sérhæfða dagdvöl fyrir fólk með heilabilun á Akranesi.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar aðstandendum fyrir góðar og gagnlegar umræður.


2.Ræstitækni ehf. - þjónustusamningur

2208038

Akraneskaupstaður hefur verið með þjónustusamning við Ræstitækni ehf. síðast liðin ár. Samningurinn felur í sér að starfsmenn Ræstitækni ehf. sinna þeim hluta stuðnings- og stoðþjónustu sem snýr að heimilisþrifum á heimilum einstaklinga sem ekki geta séð hjálparlaust um þau. Ákvæði samnings eru nú til endurskoðunar að beiðni beggja aðila.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir drög að breytingum á þjónustusamningi við Ræstitækni ehf. Velferðar- og mannréttindaráð vísar drögunum til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 18:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00