Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

77. fundur 07. mars 2018 kl. 16:00 - 17:15 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir formaður
  • Anna Þóra Þorgilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Svala Kristín Hreinsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.Trúnaðarmál.

1302075

Trúnaðarmál.
Afgreiðsla trúnaðarmál.

2.Trúnaðarmál.

1802347

Trúnaðarmál.
Afgreiðsla trúnaðarmál.

3.Trúnaðarmál.

1802348

Trúnaðarmál.
Afgreiðsla trúnaðarmál.

4.Trúnaðarmál.

1802313

Trúnaðarmál.
Afgreiðsla trúnaðarmál.

5.Trúnaðarmál.

1706080

Trúnaðarmál.
Afgreiðsla trúnaðarmál.

6.Trúnaðarmál.

1803026

Trúnaðarmál.

7.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2018

1802030

Breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning á Akranesi voru samþykktar í bæjarstjórn 23. janúar 2018. Breytingarnar voru í samræmi við leiðbeinandi reglur
velferðarráðuneytisins fyrir sveitarfélög. Samkvæmt reglum um sérstakan húsnæðisstuðning Akraneskaupstaðar er skilyrði fyrir því að umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning verði samþykkt er að viðkomandi umsækjandi eigi rétt til húsnæðisbóta á grundvelli laga nr. 75/2016. Tilgrein eru hver áhrif tekna eru á grunnfjárhæð húsnæðisbóta.
Í 5. grein reglnanna um sérstakan húsnæðisstuðning Akraneskaupstaðar eru einnig sömu tekjuviðmið. Lagt er til að 5. grein reglna um sérstakan húsnæðisstuðning Akraneskaupstaðar verði felld út.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að 5. grein reglnanna um sérstakan húsnæðisstuðning Akraneskaupstaðar verði felld út. Greinanúmer verði uppfærð í samræmi við það.

8.Þroskahjálp húsbyggingasjóður samstarf

1802401

Á síðustu árum hefur velferðar- og mannréttindasvið með heimild frá velferðar- og mannréttindaráði leitað eftir samstarfi við hagsmunafélög sem taka að sér byggingu búsetukjarna fyrir fatlaða. Á þeim tíma skiluðu viðræðurnar ekki frekara samstarfi en vilji aðila var til að taka þær upp aftur síðar.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að hefja viðræður við Húsbyggingasjóð Þroskahjálpar um kaup eða byggingu íbúða fyrir fatlaða á Akranesi.

Fundi slitið - kl. 17:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00