Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

4. fundur 07. janúar 2015 kl. 17:00 - 18:25 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Ingibjörg Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björnsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðar- og
  • Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri
  • Laufey Jónsdóttir verkefnisstjóri heimaþjón
Fundargerð ritaði: Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.Þrif í heimahúsum - tilboð

1408033

Á fundi Velferðar og mannréttindaráðs 3. desember kynnti verkefnisstjóri tillögu að framlengingu þjónustusamnings við Húsfélagaþjónustuna s.f. til 1. nóvember 2015. Húsfélagaþjónustan óskar eftir 5% hækkun á samningnum.
Laufey Jónsdóttir verkefnisstjóri kynnti ósk viðsemjenda um 5% hækkun og leggur til að gengið verði til samninga skv. fyrirliggjandi gagntilboði.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir tillögu verkefnisstjóra.

2.Heimsendur matur 2015

1501061

Með fundarboði fylgdi minnisblað sviðsstjóra þar sem upplýst er um hækkun á heimsendum mat.
Málið kynnt. Velferðar- og mannréttindaráð telur að hækkun á stakri máltíð sem nemur tæplega 21% sé umtalsverð og ekki í takt við aðrar gjaldskrárhækkanir. Velferðar- og mannréttindaráð telur sig hins vegar ekki hafa aðkomu að verðlagningu á heimsendum mat sem stjórn Höfða dvalar- og hjúkrunarheimilis hefur tekið ákvörðun um.

3.Þjónustugjaldskrár 2015 - ráðstöfun fjármuna

1411069

Bæjarráð óskar eftir að fagráð taki greinargerð starfshóps um þjónustugjaldskrár 2015 til umfjöllunar og skili umsögn fyrir 1. mars n.k.
Málin rædd en afgreiðslu frestað. Laufey Jónsdóttir yfirgaf fundinn kl. 18:00.

4.Félagsþjónusta sveitarfélaga - rekstrarkostnaður

1412096

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman upplýsingar úr ársreikningum sveitarfélaga vegna ársins 2013. Upplýsingarnar taka til útgjalda sveitarfélaga vegna félagsþjónustu.

5.Starfshættir velferðar- og mannréttindaráðs

1411124

Rætt um að velferðar- og mannréttindaráð fari í heimsóknir í undirstofnanir.

6.Starfsáætlun velferðar- og mannréttindasviðs 2015

1411093

Velferðar- og mannréttindaráð hefur fjallað um starfsáætlun velferðar- og mannréttindasviðs 2015 og samþykkir starfsáætlunina.

Fundi slitið - kl. 18:25.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00