Fara í efni  

Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)

62. fundur 04. september 2006 kl. 17:30 - 19:30

62. fundur tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarherbergi, Stillholti 16 -18, mánudaginn 4. september 2006 og hófst hann kl. 17:30.


 

Mætt á fundi:            Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, formaður

Sæmundur T. Halldórsson

Silvia Llorens Izaguirre

Bjarki Þór Aðalsteinsson

 

Jón Þór Þórðarson áheyrnarfulltrúi ÍA

 

Einnig sat Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri  fundinn og ritaði fundargerð.

 

Fyrir tekið:

 

1.  Bréf frá skólameistara FVA til bæjarráðs sem vísað var til umsagnar tómstunda- og forvarnarnefndar.

Talsverðar umræður urðu um starfsvettvang og verkefni forvarnarfulltrúa. Ákveðið að afla frekari gagna og taka málið fyrir að nýju á fundi 18. september.

 

2.  Bréf frá ÍSÍ.

Talsverðar umræður urðu um málið.

Sviðsstjóra falið að svara bréfinu í samræmi við umræður á fundinum.


3. Málefni Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum. 

Málin rædd. Nefndarmenn styðja þær tillögur sem kynntar voru.

 

4.  Tímaúthlutun til íþróttafélaganna haustið 2006.

Jón Þór sagði frá úthlutun til íþróttafélaganna.

 

5.  Önnur mál.  

Dreift gögnum um forvarnardag 28. september í 9. bekk. 

Kynnt námskeið fyrir unglingaráðið 15. og 16. september n.k.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00