Fara í efni  

Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)

28. fundur 11. febrúar 2004 kl. 17:00 - 19:00

28. fundur í tómstunda- og forvarnarnefnd var haldinn í fundarsal bæjarskrifstofu,  þriðjudaginn 11. febrúar 2004 og hófst hann kl. 17.00.


Mættir:   Hjördís Hjartardóttir, formaður 
 Njáll Smárason
 Eydís Líndal Finnbogadóttir 
 Sævar Haukdal (fundarritari)
 Hallveig Skúladóttir

Íþróttabandalag Akraness: Jón Þór Þórðarson

Sviðsstjóri tómstunda- 
 og forvarnarsviðs:   Aðalsteinn Hjartarson


Dagskrá fundar:

 

1. Upplýsingar sviðsstjóra
Sviðstjóri gerði grein fyrir helstu verkefnum sem unnið hefur verið að síðustu vikur, einnig gerði hann grein fyrir helstu verkefnum sem framundan eru.

 

2. Fréttabréf Arnardals - febrúar
Lagt fram.

 

3. Bréf UMFÍ dags. 16. jan. 2004
Nefndin mun taka þessi mál til skoðunar.

 

4. Bréf frá Mentamálaráðuneytinu dags 29. jan. 2004
   Lagt fram.

 

5. Bréf ÍSÍ dags. 23. jan. 2004
Lagt fram og efni skýrslunnar rætt.

 

6. Samningur Akraneskaupstaðar og Skátafélags Akraness
Samningur samþykktur.

 

7. Tillaga æskulýðsfulltrúa varðandi vinnutíma unglinga í Vinnuskóla Akraness.
Sviðstjóra falið að boða æskulýðsfulltrúa á næsta fund nefndarinnar til að ræða þessi mál.
 
8. Hugmyndir að þema í forvarnarmálum.
Hugmyndir ræddar og ákveðið að þema fram til vors verði gegn steranotkun.

 

9. Tillaga að greiðslu styrkja vegna barna og unglingastarfs ? fyrir fyrri úthlutun ársins 2004  (1.mars 2004)
Greitt verður samkvæmt úthlutunarreglum, tillaga sviðsstjóra samþykkt.

 

10. Hátíðaskipulag 2004.
Sviðstjóri kynnti drög að undirbúningi sumarhátíða, málið verður rætt frekar á næsta fundi.

 
11. Önnur mál.
Þar sem Hallveig Skúladóttir hefur sagt sig úr nefndinni, þakkaði formaður henni fyrir störf sín.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.30

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00