Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

118. fundur 22. mars 2021 kl. 16:30 - 18:00 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Nefndarmenn
  • Elsa Lára Arnardóttir formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Helgi Pétur Ottesen
  • Kristján Sveinsson varamaður
Starfsmenn
  • Guðmunda Maríasdóttir fulltrúi starfsmanna
  • Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri
  • Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fundargerð ritaði: Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

1.  Ársreikningur 2020
Jóhann Þórðarson frá Endurskoðunarstofunni Álit ehf. fór yfir ársreikninginn ásamt framkvæmdastjóra.
Samkvæmt ársreikningi námu rekstrartekjur Höfða 1.096 mkr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta námu 1.093 mkr. Afskriftir námu 25,8 mkr. og fjármagnsliðir nettó 16,9 mkr. Rekstrarafkoma ársins er neikvæð um 39,6 mkr.
Handbært fé lækkar um 49,1 mkr. og nam 137,7 mkr. í árslok 2020.
Stjórn og framkvæmdastjóri staðfesta ársreikninginn með undirskrift sinni.

2.  Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir einn einstakling, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 17.3.2021:
Hjúkrunarrými: 31 einstaklingar.
Dvalarrými: 9 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 27 einstaklingar.

3.  Framkvæmdanefnd Höfða
Bréf formanns nefndarinnar dags. 25.2.2021 þar sem hann segir af sér formennsku í framkvæmdanefnd Höfða þar sem það samræmist ekki nýju starfi hans sem byggingarfulltrúi Akraneskaupstaðar. Stjórn Höfða þakkar Karli fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi. Stjórn Höfða óskar eftir tilnefningu Akraneskaupstaðar á nýjum fulltrúa í nefndina.

4.  Erindi frá Sólrúnu Perlu Garðarsdóttur varðandi mat á Höfða
Lagt fram.
Framkvæmdastjóra falið að svara erindinu.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00