Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

94. fundur 25. febrúar 2019 kl. 16:30 - 18:30 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Fundinn sátu: Elsa Lára Arnardóttir formaður, Kristjana Helga Ólafsdóttir varaformaður, Björn Guðmundsson, Helgi Pétur Ottesen, Þura B. Hreinsdóttir starfandi hjúkrunarforstjóri og Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Fyrir var tekið:  

1. Vistunarmál

Samþykkt vistun fyrir tvo einstaklinga, sjá trúnaðarbók.

2. Viðburðaryfirlit

Lagt fram viðburðaryfirlit fyrir tímabilið 29. janúar 24. febrúar 2019.

3. Rekstraryfirlit Höfða 1. janúar til 31. desember 2018

Lagt fram.

4. Ályktun vegna hjúkrunarrýma

Stjórn Höfða lýsir yfir miklum vonbrigðum með svör heilbrigðisráðuneytisins á erindi Höfða frá 28. desember 2016 um fjölgun varanlegra hjúkrunarrýma og telur þau í miklu ósamræmi við þá hrópandi þörf á fjölgun hjúkrunarrýma í landinu öllu. Fyrir liggur að þegar heimild Höfða til reksturs svokallaðra biðhjúkrunarrýma í tengslum við fráflæðisvanda Landspítala rennur út í lok september mánaðar 2019 munu standa auð og ónotuð  fjögur íbúðarými á Höfða.  Vert er að geta þess að skv. útreikningi heilbrigðisráðuneytis kostar 36,5 mkr. að byggja nýtt hjúkrunarrými með búnaði.  Því munu standa ónotuð íbúðarými á Höfða sem kostar 146 mkr. að byggja. Varðandi rök ráðneytisins um að heilbrigðisumdæmi Vesturlands sé eitt best setta heilbrigðisumdæmi landsins m.t.t. fjölda hjúkrunarrýma vill stjórn Höfða taka eftirfarandi fram: • Í sveitarfélögunum Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Akraneskaupstað sem eru í suðurhluta umdæmisins og liggur að heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins eru um 65% af íbúafjölda umdæmisins en einungis 50% af varanlegum hjúkrunarrýmum umdæmisins og því mikil þörf á nýjum hjúkrunarrýmum. • Í dag eru 28 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum á Höfða og á biðlista eftir hvíldarinnlögn í hjúkrunarrými eru 20 einstaklingar. • Reiknuð vistunarþörf í hjúkrunarrými fyrir Akranes og Hvalfjarðarsveit er langt umfram þau 61 hjúkrunarrými sem eru á Höfða í dag. • Með tilkomu Færni- og heilsumatsnefnda er vistun í hjúkrunarrými ekki bundin við íbúa hvers umdæmis fyrir sig.  • Í dag eru um 8,5% af íbúum Höfða með færnismat úr öðrum heilbrigðisumdæmum og um 11% af einstaklingum á biðlista eftir dvöl. Stjórn Höfða skorar á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að endurskoða afstöðu sína til erindis Höfða um fjölgun varanlegra hjúkrunarrýma og felur formanni stjórnar og framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með heilbrigðisráðherra sem allra fyrst um málið. Ályktunin er send heilbrigðisráðherra, þingmönnum Norðvesturkjördæmis og eignaraðilum.

5. Kjarasamningar - umboð til kjarasamningsgerðar

Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um umboð Höfða til kjarasamningsgerðar. Stjórn Höfða samþykkir fyrirliggjandi umboð og felur framkvæmdastjóra undirritun þess.

6. Viðhaldsmál

Minnisblað framkvæmdastjóra varðandi stöðu viðhaldsmála. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

7. Starfsmannamál - trúnaðarmál

Afgreiðsla trúnaðarmál.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00