Fara í efni  

Starfshópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja (2010)

4. fundur 30. september 2010 kl. 18:00 - 19:30

4. fundur starfshóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja, haldinn  í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, fimmtudaginn 30. september 2010 og hófst hann kl. 18:00

_____________________________________________________________ 

Fundinn sátu:

Einar Benediktsson, formaður - fulltrúi S-lista

Hjördís Garðarsdóttir, fulltrúi V-lista

Dagný Jónsdóttir, fulltrúi B-lista

Gunnar Sigurðsson, fulltrúi D-lista

Sturlaugur Sturlaugsson, fulltrúi ÍA

Guðlaug Margrét Sverrisdóttir, fulltrúi ÍA

Jón Þór Þórðarson, fulltrúi ÍA

Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri

Fundargerð ritaði:  Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri. 

_____________________________________________________________ 

Fyrir tekið: 

1.

1008038 - Íþróttamannvirki, uppbygging

Næstu skref starfshópsins verða rædd.

Framkvæmdastofu falið að kanna mögulega stækkun Akraneshallar til suðurs um þrjú bil, með möguleika á æfinga-og kennslusundlaug, fimleika og líkamsræktaraðstöðu á tveimur hæðum.

Starfshópur felur framkvæmdastofu að skoða kosti og galla mjúkhýsa meðal annars sem yfirbyggingu á Jaðarsbakkalaug, eða sem sjálfstæð lausn.(www.scandihall.no)

Verkefnastjóra framkvæmdstofu er falið að kalla eftir teikningum Gunnars Borgarssonar af yfirbyggingu sundlaugar á Jaðarsbökkum.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00