Fara í efni  

Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands (2001-2009)

16. fundur 06. september 2005 kl. 12:00 - 13:30

Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands haldinn í fundarherbergi skólans þriðjudaginn 6. september 2005 kl. 12:00.


Mætt voru: Þorgeir Jósefsson, formaður skólanefndar,
 Hörður Helgason skólameistari,
 Atli Harðarson aðstoðarskólameistari,
 Bergþóra Jónsdóttir,
 Björn Bjarki Þorsteinsson,
 Borghildur Jósúadóttir,
 Sigurgeir Sveinsson, fulltrúi kennnara.

Forföll boðuðu: Hólmfríður Sveinsdóttir,
 Bergþór Ólason.


1. Innritun og fjöldi nemenda á haustönn 2005.
2. september voru skráðir 610 nemendur í skólann.  Miðað við venjulegt brottfall verða nemendur á önninni sem samsvarar 562 ársnemendum og ársnemendur 2005 verða þá 540.
 Skólanefnd lýsir enn einu sinni yfir áhyggjum sínum með að skólinn fái ekki fjármagn til að taka á móti öllum nemendum sem sóttu um skólavist.  Þannig að unnt sé að nýta skólahúsnæðið til fulls.

 

2. Rekstrarstaða skólans.
Skólameistari lagði fram rekstraryfirlit skólans fyrir fyrstu 7 mánuði ársins. Miðað við yfirlitið er rekstur skólans í jafnvægi og á áætlun.

 

3. Byggingarmál.
 Framkvæmdir við nýbyggingu og endurbætur ganga vel og eru á áætlun.  Formaður kynnti fyrstu hugmyndir um stækkun heimavistar.  Formanni og skólameistara falið að vinna áfram að málinu.

 

4. Samstarfsnefnd vegna kjarasamninga kennara.
 Fulltrúar skólans í samstarfsnefndinni verða:  Hörður Helgason, Atli Harðarson og Samúel Grímsson.  Til vara:  Þorgeir Jósefsson.

 

5. Önnur mál
a) Breytingar á starfsliði skólans í upphafi skólaárs 2005 ? 2006.
Eftirtaldir kennarar láta af störfum:
? Atli Rafn Kristinsson
? Gunnar Haukur Kristinsson
? Hörður Ragnarsson
? Sigtryggur Karlsson

 

Aðrir sem unnu við skólann á síðasta skólaári og láta af störfum eru:
? Fjóla V. Bjarnadóttir og
? Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, sem unnu í mötuneytinu
 

Eftirtaldir starfsmenn verða í leyfi á skólaárinu:
? Kristbjörg Kjerúlf, starfsmaður í mötuneyti og ræstingum
? Rúna Björk Gísladóttir, starfsmaður á skrifstofu
? Þórólfur Ævar Sigurðsson, íþróttakennari

Kennarar sem koma nýir til starfa eru:


? Ásdís Sigurðardóttir, íþróttakennari sem leysir Þórólf Ævar af
? Elínborg Halldórsdóttir, stundakennari sem kennir ?Skapandi starf?
 (SST102) á Félagsmála- og tómstundabraut
? Eydís Aðalbjörnsdóttir, kennari í landafræði
? Ingibjörg Haraldsdóttir, stundakennari sem kennir ?Frístundafræði?
 (FRÍ103) á Félagsmála- og tómstundabraut

 

Aðrir starfsmenn sem ekki voru á síðasta skólaári eru:
? Edda Einarsdóttir, sem leysir Rúnu af á skrifstofu
? Guðmundur Egill Ragnarsson, sem kemur aftur til starfa sem forstöðumaður mötuneytis eftir árs leyfi
? Ísabella Lárusdóttir, kemur til starfa í mötuneyti skólans

 

b) Skólameistari sagði frá fundi sem hann sat með bæjarráði Borgarbyggðar um hugsanlega stofnun framhaldsskóla í Borgarnesi.

 

 Fundi slitið kl. 13:30.

 Borghildur Jósúadóttir fundarritari.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00