Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

223. fundur 20. september 2023 kl. 08:00 - 10:45 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Liv Aase Skarstad varaformaður
  • Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja
  • Arnbjörg Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla
  • Sigurður Arnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla
  • Hrafnhildur Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi kennara grunnskóla
  • Guðrún Hjörleifsdóttir áheyrnarfulltrúi kennara grunnskóla
  • Gíslína Erna Valentínusdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
  • Anney Ágústsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Dagskrá

1.Reglur um niðurgreiðslu vegna dvalar barna hjá dagforeldrum - endurskoðun

2209178

Skóla- og frístundaráði hafa borist ábendingar um óskýrleika í orðalagi í reglum um niðurgreiðslu vegna dvalar barna hjá dagforeldrum. Ráðið leggur til orðalagsbreytingar sem árétta að allar greiðslur reiknast frá þeim mánaðardegi sem barn nær niðurgreiðslualdri. Skóla- og frístundaráð vísar breyttum reglum til staðfestingar í bæjarstjórn.

2.Skóla- og frístundasvið - lykiltölur skólaárið 2023-2024

2309171

Samantekt á lykiltölum frá stofnunum á skóla- og frístundasviði. Áheyrnarfulltrúar grunnskólanna sitja fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.
Áheyrnarfulltrúar Grundaskóla víkja af fundi.

3.Íþróttahúsið Vesturgötu - loftgæði

2309022

Kynning á niðurstöðum úttektar Verkís á íþróttahúsinu á Vesturgötu. Áheyrnarfulltrúar Brekkubæjarskóla sitja fundinn undir þessum lið ásamt Guðmundu Ólafsdóttur framkvæmdarstjóra ÍA, Hrönn Ríkharðsdóttur formanns ÍA og Daníel Sigurðssyni Glad forstöðumanni íþróttamannvirkja og íþróttamála.
Fyrir liggur minnisblað Verkís um úttekt á húsnæði íþróttahússins við Vesturgötu sem framkvæmd var nú í september 2023.

Úttektin leiddi í ljós ófullnægjandi rakavarnarlag í þaki, ónýtt byggingarefni í neðri hluta þaks, gaflveggjum og í veggjum ofan við áhorfendastúku. Einnig kemur fram að loftræsingu salarins er ábótavant.

Ljóst er að framundan er viðamikið verk við endurhönnun og framkvæmdir við íþróttahúsið sem ná til alls hússins að undanskildu suðuranddyri, búningsklefum, fimleikahúsi og Þekju.

Tekin hefur verið ákvörðun um að ráðast strax í endurbætur og loka íþróttasal og kjallara hússins frá og með fimmtudeginum 21. september n.k. Búið verður þannig um væntanlegt framkvæmdarsvæði að hægt verður að halda áfram starfsemi í fimleikahúsi og Þekju, ásamt því að nýta búningsklefa og anddyri við fimleikahús (suðuranddyri).

Náið samráð verður haft við forsvarsmenn notenda hússins við gerð aðgerðaráætlunar þar sem markmiðið er að halda áfram úti skóla- og íþróttastarfi sem fram hefur farið í húsinu, á verktímanum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og útfærslu verða sendar til þeirra sem málið varðar af skólastjórnendum, framkvæmdarstjóra ÍA og forstöðumanni íþróttamannvirkja og íþróttamála.

Bæjaryfirvöld munu á næstunni vinna að nákvæmri tímalínu, hönnun og útboði í tengslum við endurbæturnar á íþróttahúsinu en leitast verður við að stytta verktímann eins og kostur er.

Skóla- og frístundaráð mun fylgja verkefninu vel eftir í samstarfi við skipulags- og umhverfisráð og staða framkvæmda tekin upp með reglubundnum hætti í ráðinu. Frekari upplýsingar verða veittar eftir því sem þær liggja fyrir.

4.ÍA - rekstur, samskipti og samningur 2022-2026

2204124

Framhaldsumræða um drög að viðauka við þjónustusamning milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness sem gerður er til að skýra mistúlkandi ákvæði/atriði samningsins. Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri ÍA, Hrönn Ríkharðsdóttir formaður ÍA og Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja- og íþróttamála sitja fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð felur Guðmundu og Daníel að vinna málið áfram í samstarfi við sviðsstjóra. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi ráðsins.

5.Tómstundaframlag - nýting 2022

2309169

Kynning á nýtingu tómstundaframlags fyrir árið 2022 og það sem af er ársins 2023. Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri ÍA, Hrönn Ríkharðsdóttir formaður ÍA og Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja- og íþróttamála sitja fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00