Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

153. fundur 02. febrúar 2021 kl. 16:00 - 18:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Bára Daðadóttir formaður
  • Sandra Margrét Sigurjónsdóttir varaformaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
  • Anney Ágústsdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra
  • Salbjörg Ósk Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólakennara
  • Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna
Starfsmenn
  • Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
  • Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir verkefnastjóri skóla- og frístundasviðs
Dagskrá

1.Leikskóli Skógarhverfi - hönnun og samningar

2008156

Kynning á stöðu hönnunar og framvindu í fyrirhugaðri byggingu nýs leikskóla í Skógahverfi.
Anney Ágústsdóttir áheyrnarfulltrúi stjórnenda í leikskóla, Salbjörg Ósk Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólakennara, Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskóla, Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri, Ingunn Sveinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri og Alfreð Alfreðsson rekstrarstjóri áhaldahúss sitja fundinn undir þessum lið.
Jón Ólafur Ólafsson arkitekt kynnti stöðu hönnunar og framvindu byggingu nýs leikskóla.

Skóla- og frístundaráð þakkar Jóni Ólafi fyrir góða kynningu.

Ingunn R., Ingunn S., Alfreð og Jón Ólafur víkja af fundi.

2.Sumarleyfi leikskólanna 2021

2101138

Fjallað um sumaropnun leikskólanna á Akranesi 2021
Áheyrnarfulltrúar sitja áfram undir þessum lið.

Skóla- og frístundaráð leggur til að sumarleyfi leikskólanna sumarið 2021 verði fjórar vikur. Óskað er eftir því að leikskólastjórar leggi fram tillögu að lokunartíma eftir framkvæmd skoðanakönnunar meðal foreldra og að höfðu samráði við starfsmenn leikskólans.

3.Námsleyfi í leikskólum

2002322

Í samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 er gert ráð fyrir fjármagni til þess að úthluta til leikskóla sem hafa starfsmenn innan sinna raða sem stunda nám í leikskólafræðum samhliða vinnu.
Áheyrnarfulltrúar sitja áfram undir þessum lið.

Skóla- og frístundaráð samþykkir tillöguna og vísar afgreiðslu í bæjarráð.

4.Innritun í leikskóla 2021

2101286

Í mars nk. fer fram innritun barna í leikskólana á Akranesi.
Áheyrnarfulltrúar sitja áfram undir þessum lið.

Skóla- og frístundaráð samþykkir að börn fædd í janúar til og með maí 2020 fái tilboð um leikskóladvöl frá haustinu 2021.

Áheyrnarfulltrúar víkja af fundi.

5.Gjaldtaka af eldri borgurum og öryrkjum - mótmæli

2101213

Erindi frá FEBAN
Skóla- og frístundaráð þakkar FEBAN erindið en tekur undir bókun bæjarráðs frá 28. janúar 2021.

Fundarmenn samþykktu fundargerðina með rafrænum hætti.
Sign (BD, RBS, SMS, FES og VJ).

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00