Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

54. fundur 07. febrúar 2017 kl. 16:30 - 18:30 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson aðalmaður
  • Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Inga Guðnadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Þórður Guðjónsson varamaður
Starfsmenn
  • Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Fundargerð ritaði: Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Dagskrá

1.Sumarlokun leikskóla 2017 - Sumarskóli

1610022

Skóla- og frístundaráð samþykkir að þrír leikskólar á Akranesi loki í fimm vikur í sumar en einn leikskóli taki að sér að reka sumarskóla leikskólanna í tvær vikur. Skóla- og frístundaráð leggur til að það verði hlutverk eins leikskóla að reka sumarskólann. Skóla-og frístundaráð beinir því til bæjarráðs að veitt verði fjármagn til orlofsbætingar til leikskólans sem tekur að sér sumarskólann sem nemur kostnaðinum við hann.
Lögð er áhersla á að vanda til kynningar á fyrirkomulaginu fyrir foreldrum og starfsmönnum.
Skóla- og frístundaráð beinir því til næstu fjárhagsáætlunargerðar að fjármagn fari til leikskólanna til að bæta orlofstöku starfsmanna.

2.Leikskólar - vinnureglur vegna undirmönnunar

1702047

Vinnureglur - viðmið
Viðbrögð og aðgerðir vegna undirmönnunar í leikskólum, sem skapast vegna veikinda eða annarra fjarvista starfsmanna í leikskólum Akraneskaupstaðar
Skóla- og frístundaráð samþykkir að leikskólastjórar í samvinnu við sviðsstjóra fari eftir þeim vinnureglum sem lagðar voru fram.

Skóla- og frístundaráð vill hrósa starfsfólki leikskólanna á Akranesi fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf.

Áheyrnarfulltrúar leikskólanna víkja af fundi kl.17:15

3.Erindi vegna Parkour og hjólahreystibrautar

1702049

Ósk um samstarf um skipulagningu á uppsetningu á hjólahreystibraut og Parkour leiksvæði á Akranesi.
Alexander Kárason kynnir hugmyndir sínar um möguleikana sem felast í því að auka fjölbreytni í íþróttaiðkun barna og ungmenna.
Jón Hjörvar áheyrnarfulltrúi ungmenna tók sæti á fundinum kl. 17:30

Skóla- og frístundráð þakkar Alexander Kárasyni fyrir góða kynningu og vísar málinu til frekari skoðunar á skóla- og frístundasviði í samstarfi við skipulags- og umhverfissvið, ÍA og stjórnendur grunnskólanna.

Jón Hjörvar víkur af fundi kl. 18:15

4.Akraneshöll - nýtt gervigras

1607058

Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs um endurnýjun á gervigrasi í Akraneshöll.
Lagt fram til kynningar
skóla- og frístundaráð fagnar því að stefnt er að því að endurnýja gervigras Akraneshallar á árinu.

Fundi slitið - kl. 18:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00