Skipulagsnefnd (2000-2002)
99. fundur skipulagsnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, 17. desember 2001 kl. 15:00.
Mættir á fundi: Jóhannes Snorrason formaður,
Sigurlína G. Júlíusdóttir,
Lárus Ársælsson,
Edda Agnarsdóttir,
Heiðrún Janusardóttir.
Auk þeirra Þorvaldur Vestmann sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs, Magnús Þórðarson byggingar- og skipulagsfulltrúi og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.
1. Flatahverfi, deiliskipulag klasa 7-8., Mál nr. SN010016
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Afgreiðsla skipulagstillögu klasa 7-8 í Flatahverfi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkomin tillaga að deiliskipulagi verði samþykkt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:15.