Skipulagsnefnd (2000-2002)
94. fundur skipulagsnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, 19. nóvember 2001 kl. 15:00.
Mættir á fundi: Jóhannes Snorrason formaður,
Lárus Ársælsson,
Edda Agnarsdóttir,
Heiðrún Janusardóttir,
Sigurlína Guðrún Júlíusdóttir,
Auk þeirra Þorvaldur Vestmann forstöðumaður tækni- og umhverfissviðs og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.
1. Vesturgata 48, breytt notkun. (000.912.17) Mál nr. SN010030
290641-7649 Halldór Friðgeir Jónsson, Vesturgötu 48, 300 Akranesi
Grenndarkynning sem gerð var vegna breyttrar notkunar húsnæðis á ofangreindri lóð. Breytingin var kynnt samkvæmt 26. gr. skipulags- og byggingarlaga. Frestur til athugasemda var til 10. nóvember sl., engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkomin tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt.
2. Flatahverfi, deiliskipulag klasa 7-8. Mál nr. SN010016
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Umfjöllun um endanlega tillögu að deiliskipulagi í klasa 7-8. Meðfylgjandi eru drög að skipulagsskilmálum.
Formanni skipulagsnefndar falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri við skipulagshönnuði.
3. Tindaflöt 1-5, breyting. Mál nr. SN010049
540671-0959 Ístak hf., Skúlatúni 4, 105 Reykjavík
Bréf Pálma Guðmundssonar arkitekts fyrir hönd Ístaks hf. um heimild til að breyta deiliskipulagi á ofangreindri lóð. Breytingin fellst í að fjölga íbúðum í 12, hækka hús úr tveimur hæðum í þrjár, stækka byggingarreit og stækkun lóðar. Meðfylgjandi eru tillaga að breytingunni.
Lagt fram.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:05