Skipulagsnefnd (2000-2002)
64. fundur skipulagsnefndar haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, þriðjudaginn 6. febrúar 2001 kl. 13:00.
Mættir á fundi: Jóhannes Snorrason formaður,
Edda Agnarsdóttir,
Sigurlína G. Júlíusdóttir,
Lárus Ársælsson,
Guðbjartur Hannesson.
Auk þeirra Skúli Lýðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi, Þorvaldur Vestmann sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Akratorgsreitur ? deiliskipulag.
Endurskoðun deiliskipulags.
Bjarni Vésteinsson mætti á fundinn lagði fram leiðrétt grunnkort af deiliskipulagsreitnum á tölvutækuformi. Ráðgjafa falið að hefja frekari vinnu við að:
· Yfirfara mörk á byggingarreitum.
· Yfirfara umferðarskipulag.
· Yfirfara bílastæðaþörf og endurskilgreina þau svæði sem hægt er að nota til að uppfylla bílastæðaþörf innan deiliskipulagsreitsins.
· Framkvæma húsakönnun þ.e. skoða húsbyggingar með tilliti til aldurs og minjagildis húsa.
2. Flatahverfi, deiliskipulag klasi 9.
610596-2829 Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar sf. Jörundarholti 30, 300 Akranesi.
Tillaga Gísla Sigurðssonar fyrir hönd Trésmiðju Þráins um deilisskipulag á klasa nr. 9 í Flatahverfi.
Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að ræða við skipulagshönnuð.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:15.