Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

188. fundur 02. mars 2021 kl. 16:00 - 17:45 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður
  • Ólafur Adolfsson varaformaður
  • Guðríður Sigurjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Karl Jóhann Haagensen byggingarfulltrúi
  • Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Dagskrá

1.Jaðarsbakkar 1 - hönnun

2006228

Kynning á stöðu hönnunar á fyrsta hluta að Jaðarsbökkum.
Sameiginlegur dagskrárliður skóla-og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs, jafnframt sátu fundinn undir þessum dagskrárlið bæjarfulltrúarnir Kristinn Hallur Sveinsson, Einar Brandsson, Rakel Óskarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Valgarður Lyngdal Jónsson, Elsa Lára Arnardóttir.

Þórður Guðjónsson formaður starfshóps um hönnun 1. áfanga á Jaðarsbökkum fór yfir minnisblað starfshópsins dagsett 19. febrúar 2021. Gunnar Borgarsson arkitekt fór síðan yfir stöðu hönnunar mannvirkisins eins og hún stendur í dag.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi hönnunargögn og að þau verði notuð í áframhaldandi hönnun mannvirkis. Jafnframt tekur skipulags- og umhverfisráð undir þau sjónarmið sem fram koma í minniblaði starfshóps um framhald verkefnisins er lúta að hlutverki núverandi starfshóps í hönnunarferli og því að sérstök bygginganefnd verði stofnuð þegar framkvæmd fer af stað.
Skipulags- og umhverfisráð leggur því til við bæjarráð að framlengja vinnutímabil starfshópsins þar til hönnun er lokið og í framhaldinu að leggja fram sérstakt erindisbréf bygginganefndar þegar framkvæmdir hefjast.

Fundi slitið - kl. 17:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00