Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

5. fundur 29. janúar 2015 kl. 16:00 í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Kristín Sigurgeirsdóttir varaáheyrnarfulltrúi
  • Sævar Jónsson varamaður
  • Karitas Jónsdóttir varaáheyrnarfulltrúi
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Einar Brandsson formaður
Starfsmenn
  • Hildur Bjarnadóttir skipulags- og byggingarfu
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá

1.Sjóður - styrkir til viðhalds fasteigna á Akranesi.

1411188

Tillaga að reglum fyrir sjóðinn.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi reglur og leggur til að þeim verði vísað til bæjarráðs.

2.Starfshópur um Breið

1409230

Fundargerð nr. 5 og 6.
Fundargerðir lagðar fram.

3.Starfshópur um Sementsreit

1409162

Fundargerðir nr. 4 og 5.
Fundargerðir lagðar fram.

4.Ketilsflöt - vandamál v. umferðar

1411200

Bréf dags. 25. nóv. 2014 frá leikskólastjóra Akrasels, ásamt ódagsettu bréfi frá sex íbúum í Skógarhverfi.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar fyrir ábendinguna og vísar málinu til starfshóps um umferðaröryggisáætlun.

5.Starfshópur um gerð umferðaröryggisáætlunar

1310152

Farið yfir stöðu máls.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að samið verði við Sigurð Helgason um úttekt og tillögur um úrbætur á umferðaröryggismálum.

6.Framkvæmdaáætlun 2015 - ráðstöfun fjármuna

1411071

Lögð fram tillaga að framkvæmdaáætlun 2015.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun 2015 og vísar henni til bæjarráðs. Samþykkt með tveimur atkvæðum (EB, VLJ), einn sat hjá (SJ).

7.Deiliskipulag - ferill mála.

1310184

Farið yfir stöðu skipulagsmála.
Skipulags- og byggingarfulltrúi fór yfir stöðu skipulagsmála.

8.Aðalsk.breyting - Þjóðvegur 13-15

1411099

Kynning á stöðu vinnu vegna breytinga á aðalskipulagi.
Garðyrkjustjóri kynnti breytingar á aðalskipulagi m.t.t. þeirrar starfsemi sem fyrirhuguð er á svæðinu.

9.Deilisk. Þjóðvegur 13 - 15

1402153

Kynning að vinnu við nýtt deiliskipulag.
Garðyrkjustjóri fór yfir tillögu að nýju deiliskipulagi á svæðinu.

10.Deilisk.- Breiðarsvæði lóðir HB Granda hf.

1501399

Kynning á frumdrögum að breytingu á deiliskipulagi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti frumdrög að breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis er tekur til lóða Breiðargötu 8B og Suðurgötu 7.

11.Skólabraut 30, fyrirspurn um stækkun á húss

1501354

Fyrirspurn Runólfs Þ Sigurðssonar um álit ráðsins á að stækka Skólabraut 30.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00