Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)

91. fundur 03. júní 2013 kl. 16:00 - 18:45 í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Guðmundur Þór Valsson formaður
  • Magnús Freyr Ólafsson varaformaður
  • Bergþór Helgason aðalmaður
  • Sigurður V Haraldsson aðalmaður
  • Þorvaldur Vestmann framkvæmdastjóri Skipulags- og umhverfisstofu
  • Runólfur Sigurðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá

1.HB Grandi - tillaga að starfsleyfi

1305126

Bréf Umhverfisstofnunar dags. 14. maí sl. varðandi tillögu að starfseyfi fyrir fiskimjölsverksmiðju HB Granda hf.

Lagt fram til kynningar.

2.Dagur íslenskrar náttúru 2013.

1305154

Bréf Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins dags. 21. maí s.l. varðandi "Dag íslenskrar náttúru 2013" sem haldinn verður þann 16. sept. n.k.

Lagt fram til kynningar.

3.Deiliskipulag - Akratorg

1210163

Greinargerð lögð fram eftir endurskoðun.

Skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir greinagerð byggingar- og skipulagsfulltrúa. Nefndin samþykkir greinagerðina og gerir hana að sinni. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt, með þeim lagfæringum sem tilgreindar eru í greinargerð.

4.Deiliskipulagbreyting Garðholti 3, Byggðasafnið að Görðum.

1305210

Breyting á byggingareitum.

Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/210, breytingin verði grenndarkynnt fyrir íbúum á lóðum nr. 12, 14, 15, 16, 18 og 20 við Smáraflöt.

5.Deiliskipulagsbreyting Grenja.

1305211

Umsókn Grenja ehf um heimild til að breyta deiliskipulagi og setja inn byggingarreit fyrir háspennustöð á Bakkatúni 30.

Lagt er til við bæjarstjórn deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/210. Sú málsgrein segir að sé breytingin það óveruleg og hafi ekki áhrif á hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni skuggavarp eða innsýn er grenndarkynning óþörf.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur því til við bæjarstjórn að breytingin verði auglýst í B-deild stjórnartíðinda.

6.Aðalskipulagsbreyting Akurshóll (Akursbraut 5)

1305212

Drög að lýsingu aðalskipulagsbreytingar.

Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að gera breytingar á lýsingunni í samræmi við umræður á fundinum. Í framhaldinu leggur Skipulags- og umhverfisnefnd til við bæjarstjórn að lýsing á aðalskipulagsbreytingu verði auglýst. Magnús Freyr Ólafsson vék af fundi meðan málið var rætt.

7.Ægisbraut 28 umsókn um heimild til að klæða mhl 02

1305109

Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar

8.Aðalskipulag Akraness 2011, endurskoðun.

1012111

Teknar fyrir ábendingar og fyrirspurnir sem fram komu á almennum kynningarfundi sem haldinn var í Tónbergi þann 29. maí s.l.

Málin rædd, umræðum frestað til næsta fundar.

9.Espigrund 1, umsókn um heimild til að reisa kennslustofu á lóðinni

1305217

Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00