Fara í efni  

Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)

27. fundur 02. apríl 2007 kl. 16:00 - 19:00

27. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 2. apríl 2007 kl. 16:00.


 

Mætt á fundi:           

Sæmundur Víglundsson formaður

Magnús Guðmundsson

Bergþór Helgason

Helga Jónsdóttir

Björn Guðmundsson

Auk þeirra voru mætt:

Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs

Runólfur Þór Sigurðsson byggingarfulltrúi

Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð


 BYGGINGARMÁL

1.

Eikarskógar 11, nýtt einbýlishús

(001.637.06)

Mál nr. SB070067

 

140857-2469 Gissur Bachmann Bjarnason, Merkurteigur 1, 300 Akranesi

Umsókn Björn Guðmunds Þorsteinssonar kt: 110158-5995  f.h. Gissurar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt  meðfylgjandi uppdráttum Þráins Ragnarssonar verkfræðings.

Stærðir húss 149,9 m2 - 475,4 m3

Bílgeymsla      51,9 m2 - 193,1 m3

Gjöld kr.: 2.877.032 ,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 19.03.2007

 

2.

Seljuskógar 6, nýtt  2. hæða parhús með bílgeymslu

(001.637.15)

Mál nr. SB070070

 

210949-7719 Lárus Einarsson, Ósi ll, 301 Akranes

Umsókn Lárusar Einarssonar kt. 210949-7719  um heimild til þess að reisa 2. hæða parhús á lóðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Kjartans Ólafar Sigurðssonar byggingafræðings.

Stærð húss  158,9 m2  -  388,0 m3

bílgeymsla     23,4 m2  -     63,6 m3

Gjöld kr.:  2.400.590,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 23.03.2007

 

3.

Seljuskógar 8, nýtt  2. hæða parhús með bílgeymslu

(001.637.16)

Mál nr. SB070071

 

210949-7719 Lárus Einarsson, Ósi ll, 301 Akranes

Umsókn Lárusar Einarssonar kt. 210949-7719  um heimild til þess að reisa 2. hæða parhús á lóðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Kjartans Ólafar Sigurðssonar byggingafræðings.

Stærð húss  158,9 m2  -  388,0 m3

bílgeymsla     23,4 m2  -     63,6 m3

Gjöld kr.:  2.400.590,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 23.03.2007

 

4.

Hafnarbraut 16G, iðnaðarhús

(000.954.03)

Mál nr. SB070008

 

460502-4110 Logi Jóhannsson ehf, Suðurgötu 38, 300 Akranesi

Umsókn Loga Jóhannssonar  um heimild til þess að afturkalla  byggingarframkvæmdir og leyfi að viðbyggingu við matshluta 08

Stærðir : 100,0m2 og 405m3

Gjöld kr.: - 1.526.342,- bakfærist

Gjöld: kr.: 7.142,--

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 23.03.2007

 

5.

Birkiskógar 3, nýtt einbýlishús

(001.635.23)

Mál nr. SB070069

 

171172-4549 Sveinbjörn Freyr Arnaldsson, Einigrund 7, 300 Akranesi

Umsókn Birnu Guðmundsdóttir kt: 190783-3839  f.h. Sveinbjörns um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt  meðfylgjandi uppdráttum Kjartans Sigurbjartssonar byggingarfræðings.

Stærðir húss 195,7 m2 - 689,9 m3

Bílgeymsla      41,0 m2 - 129,4 m3

Gjöld kr.: 3.435.523 ,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 26.03.2007

 

6.

Höfðabraut 8, breyting innan húss

(000.683.04)

Mál nr. SB070072

 

580269-1929 Heilbrigðisstofnunin Akranesi, Merkigerði 9, 300 Akranesi

Umsókn Bjarna Þóroddssonar tæknifræðings f.h. Heilbrigðisstofnunnar Akraness um innbyrðis breytingar á íbúð 0201 samkvæmt aðaluppdrætti Bjarna Þóroddssonar tæknifræðing.

Gjöld: kr. 7.142,--

Samþykkt af byggingafulltrúa þann 27.03.2007

 

7.

Seljuskógar 16, nýtt einbýlishús

(001.637.20)

Mál nr. SB070073

 

180172-3789 Jens Viktor Kristjánsson, Leirubakki 2, 109 Reykjavík

Umsókn Jens Viktors um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt  meðfylgjandi aðaluppdráttum Arnars  Þ. Halldórssonar Arkitekts.

Stærðir húss 197,5 m2 - 745,9 m3

Bílgeymsla      34,7 m2 - 151,7 m3

Gjöld kr.: 3.414.626 ,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 26.03.2007

 

8.

Hafnarbraut 16D, iðnaðarhús

(000.954.03)

Mál nr. SB070009

 

510302-3380 Felix-útgerð ehf, Esjubraut 10, 300 Akranesi

Umsókn Matthíasar Harðarsonarnar kt. 140461-3189  f.h. Felix ehf um heimild til þess að áður samþykkt bygging skráist sem viðbygging, og að hefja byggingarframkvæmdir að viðbyggingu við matshluta 03 svæði D samkvæmt fyrirliggjandi uppdráttum. Eldri reikningar bakfærist

Stærðir : 100,0m2 og 405m3

Gjöld kr.: 1.166.436,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 27.03.2007 í samráði við sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs.

 

9.

Bjarkargrund 18, Stækkun, sólstofa

(001.951.09)

Mál nr. SB060114

 

150169-3219 Jónína Halla Víglundsdóttir, Bjarkargrund 18, 300 Akranesi

Umsókn Haraldar Ingólfssonar kt: 100870-4539   fyrir hönd Jónínu H. Víglundsdóttur um afturköllun á byggingarleyfis að  stækkun eldhús og byggja  við húsið, samkvæmt  meðfylgjandi uppdráttum Ómars Péturssonar tæknifræðings.

Stærðir stækkunar hússins  voru 10,9 m2 - 30,2 m3

Áður gerðir reikningar bakfærast.

Gjöld kr.: 7.142 ,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 27.03.2007

 

10.

Salernis og baðaðstaða við Langasand, Stöðuleyfi fyrir sturtu og salernisaðstöðu

 

Mál nr. SB070074

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Umsókn Kristjáns Gunnarssonar kt: 140649-2607 f.h. Akraneskaupstaðar um heimild til að setja niður sturtu- og salernisaðstöðu í sérútbúnum gám innfelldum í bakkann  ofan við núverandi útisturtur á Langasandi samkvæmt meðfylgjandi rissi.

Gjöld: kr.    0,0 ,--

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 28.03. 2007

 

11.

Tjaldsvæðið við Kalmansvík, salernis og baðaðstaða

 

Mál nr. SB070075

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Umsókn Kristjáns Gunnarssonar kt: 140649-2607 f.h. Akraneskaupstaðar um heimild til að setja niður sturtu- og salernisaðstöðu í sérútbúnum gám  við núverandi hús tjaldsvæðisins samkvæmt meðfylgjandi rissi.

Sótt er um stöðuleyfi frá 15.03.2007 - 15.10.2009

Gjöld: kr.    0,0 ,--

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 28.03.2007

 

12.

Birkiskógar 6, nýtt einbýlishús.

(001.635.08)

Mál nr. SB060102

 

170576-5009 Viðar Steinn Árnason, Brúarflöt 2, 300 Akranesi

Umsókn Viðar S. Árnasonar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt  meðfylgjandi uppdráttum Sigurðar Þórissonar   arkitekts.

Stærðir íbúðar  206,2 m2 - 579,8 m3

Bílgeymsla           28,2 m2 -   78,1 m3

Gjöld kr.:  3.488.392,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 28.03.2007

  

13.

Hlynskógar 6, nýtt einbýlishús

(001.635.17)

Mál nr. SB070068

 

191272-4719 Hallgrímur Guðmundsson, Vesturgata 131, 300 Akranesi

Umsókn Magnúsar H. Ólafssonar kt:  150550-4759 arkitekt f.h. Hallgríms Guðmundssonar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt  meðfylgjandi aðaluppdráttum Magnúsar  arkitekts.

Meðfylgjandi er yfirlýsing lóðarhafa um kostnað  sem hann tekur á sig vegna breytinga OR  á dreifikerfi að inntökum hússins.

Stærðir íbúðar 196,8 m2 -   680,4 m3

Bílgeymsla          46,7 m2 - 188,3  m3

Gjöld kr.: 3.492.441 ,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 29.03.2007

 

14.

Skólabraut 27, utanhúsklæðning

(000.867.10)

Mál nr. SB070076

 

180254-5449 Steinn Mar Helgason, Reynigrund 34, 300 Akranesi

271155-7869 Ómar Bergmann Lárusson, Skólabraut 27, 300 Akranesi

Umsókn Steins Helgasonar  um heimild til að klæða húseignina með standandi bárustálklæðningu og Steniklæðningu að neðan að hluta samkvæmt meðfylgjandi verklýsingu  Sæmundar Víglundssonar tæknifræðings um festingar.

Gjöld:  7.142,-- kr.

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 22.03.2007

Sæmundur Víglundsson vék af fundi.

 

15.

Esjubraut 28, viðbygging

(000.571.04)

Mál nr. SB070077

 

181168-3749 Kristján O Baldvinsson, Esjubraut 28, 300 Akranesi

220567-3979 Karen Emilía Jónsdóttir, Esjubraut 28, 300 Akranesi

Umsókn Kristjáns Baldvinssonar og Karen E. Jónsdóttur um stækkun á íbúðinni og innbyrðis breytingar samkvæmt aðaluppdráttum Magnúsar H. Ólafssonar arkitekts.

Eignin er í óskipulögðu hverfi og hefur stækkunin verið grenndarkynnt og samþykkt frá skipulagsnefnd og bæjarstjórn.

Gjöld: kr. 371.391,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 29.03.2007

Helga Jónsdóttir vék af fundi.

 

SKIPULAGSMÁL

16.

Leynislækur, byggingarsvæði

 

Mál nr. SB070078

 

681096-2219 Neshjúpur ehf, Borgarbyggð, Ásklifi 4a, 340 Stykkishólmi

Bréf bæjarráðs dags. 16. mars 2007 þar sem óskað er umsagnar skipulags- og byggingarnefndar á umsókn Neshjúps ehf. á byggingarlandi sem liggur á milli Leynisbrautar og Víðigrundar.

Samkvæmt nýsamþykktu aðalskipulagi fyrir Akraneskaupstað er umrætt svæði ekki ætlað til bygginga. Því leggur skipulags- og byggingarnefnd til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað.

 

17.

Kirkjubraut 46, Tryggvaskáli - Arnardalsreitur, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070079

 

261238-2689 Einar Jón Ólafsson, Skagabraut 11, 300 Akranesi

Umsókn Magnúsar H. Ólafssonar arkitekts í umboði Einars J. Ólafssonar dags. 30.mars 2007 þar sem óskað er eftir stækkun á íbúðarhúsi.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að breytingin verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 fyrir lóðarhöfum við Skagabraut 5, 7, 9-11, Kirkjubraut 40 og 48.

 

18.

Seljuskógar 14, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070080 

290772-4279 Sigurður Unnar Sigurðsson, Skarð, 801 Selfoss

Umsókn Sigurðar U. Sigurðssonar þar sem hann óskar eftir að fá að dýpka byggingareit um 50 cm til suðurs skv. meðfylgjandi uppdrætti.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að grenndarkynna breytinguna skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 fyrir lóðarhöfum við Seljuskóga 12 og 16 og Eikarskógum 7, 9 og 11.

 

19.

Vallholt 5, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SU060003 

670503-2320 Guðmundur Egill Ragnarsson ehf, Jörundarholti 42, 300 Akranesi

670503-2080 Ragnar Gunnarsson ehf, Leynisbraut 41, 300 Akranesi

Bréf Sveins Guðmundssonar f.h. Guðmundar Egils Ragnarssonar og Ragnars Gunnarssonar dags. 22. mars 2007 þar sem hann óskar eftir að fá að breyta lóðinni við Vallholt 5  úr iðnaðarlóð í íbúðasvæði fyrir fjölbýlishús á 3-4 hæðum með "penthouse" á efstu hæð með stórum svölum.

Skipulags- og byggingarnefnd felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara.

 

20.

Æðaroddi, endurskoðun deiliskipulags

 

Mál nr. SB070083

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Skoða þarf hvort núgildandi skipulag þarfnast endurskoðunar.

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í að deiliskipulag Æðarodda verði endurskoðað til að bregðast við breyttum kröfum og áherslum. Lagt er til að formaður ræði við hönnuð þess deiliskipulags sem í gildi er til að taka verkefnið að sér. Nefndin leggur áherslu á að breyting skipulags verði unnin í samráði við húseigendafélag á svæðinu.

 

21.

Æðaroddi 36, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070081 

070160-2859 Jón Árnason, Ásabraut 19, 300 Akranesi

Fyrirspurn Jóns Árnasonar dags. 22.3.2007 þar sem hann óskar eftir áliti nefndarinnar á að hann byggi reiðskemmu við hesthús á lóð nr. 36 eða hvort slík lóð á Æðaroddasvæðinu sé til.

Skipulags- og byggingarnefnd vísar í bókun í lið 20.

 

22.

Skógahverfi, deiliskipulag - 2. áfangi

 

Mál nr. SU060019

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Nefndin ákvað að ending götunafna í 2. áfanga Skógahverfis verði  -lundur.

Ræddar voru tillögur að nöfnum og sviðsstjóra falið að koma með tillögu á næsta fund.

 

23.

Birkiskógar 4, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070082 

281273-3969 Steinunn Kristín Pétursdóttir, Merkurteigur 10, 300 Akranesi

Beiðni lóðarhafa um dýpkun á byggingareit um 1 meter skv. meðfylgjandi uppdrætti.  Lóðarhafar við Birkiskóga 2 og 6 samþykkja breytinguna.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

 

24.

Þjóðbraut 1 - Dalbraut - Þjóðbraut, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070007 

430590-1549 Sveinbjörn Sigurðsson ehf, Smiðshöfða 7, 110 Reykjavík

Nýir uppdrættir af hækkun húss og tilfærslu vegna lagna lagðir fram.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að breytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefndin bendir á að auk hækkunar hússins við Þjóðbraut 1 um tvær hæðir er byggingarreit á Þjóðbraut 5 og 7 breytt og hliðrað vegna lagnaleiða milli Þjóðbrautar og Dalbrautar.

 

25.

Vogabraut 5, deiliskipulagsbreyting

(000.564.02)

Mál nr. SB060111 

681178-0239 Fjölbrautaskóli Vesturlands, Vogabraut 5, 300 Akranesi

Bréf með athugasemdum sem bárust bæjarstjórn frá íbúum við Heiðarbraut 63.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir eftirfarandi bókun vegna bréfs eigenda Heiðarbrautar 63:

Í texta deiliskipulagsbreytingarinnar er beinlínis greint frá því að um sé að ræða húsnæði fyrir tréiðnaðardeild. Umræddir aðilar vissu það enda laut athugasemd þeirra við breytinguna einkum að því. Þá var einnig fjallað um þessa starfsemi í öðrum athugasemdum sem bárust við kynninguna tillögunnar þannig að það virðist ekki hafa farið framhjá neinum sem gerðu athugasemdir að um væri að ræða húsnæði fyrir tréiðnaðardeild. Vart er því hægt að taka undir að illa hafi verið gerð grein fyrir þessu í kynningargögnum ef öllum athugasemdaaðilum var þetta ljóst.

Nefndin vill árétta að með skipulagsbreytingunni er ekki verið að breyta fyrirhugaðri starfsemi í húsinu  og því ekki verið að kynna breytingu á því heldur eingöngu færslu og breytingu á byggingarreitnum. Íbúar máttu því alltaf gera ráð fyrir þessari starfsemi í húsinu. Á því er engin breyting.

 

Hvað varðar smíði sumarhúsa á skólalóðinni þá er það í raun ekki skipulagsákvörðun að öðru leyti en því hvað varðar landnotkun lóðarinnar sem fjölbrautaskólalóðar þar sem m.a. fer fram verknám, en eins og áður er rakið lítur breytingin ekki að því.

  

26.

Skipulagsdagur 2007 ? Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga um skipulagsmál og umhverfismat.

(000.564.02)

Mál nr. SB060111

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Skipulagsdagur 2007 ?  Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga um skipulagsmál og umhverfismat, kynning á dagskrá Skipulagsdags á Akureyri 12-13 apríl n.k.

Skipulags og byggingarnefnd leggur til að a.m.k. 2 fulltrúar fari fyrir hönd nefndarinnar.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:00

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00