Fara í efni  

Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)

7. fundur 18. september 2006 kl. 16:00 - 19:30

7. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 18. september 2006 kl. 16:00.


 

Mætt á fundi:           

Sæmundur Víglundsson  formaður

Helga Jónsdóttir

Guðmundur Páll Jónsson

Hrafnkell Á. Proppé

Bergþór Helgason

Auk þeirra voru mætt:

Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs

Skúli Lýðsson byggingarfulltrúi

Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð

 

1.

Skógarhverfi, deiliskipulag - 2. áfangi

 

Mál nr. SU060019

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Gylfi Guðjónsson, arkitekt kynnti vinnu sem fram hefur farið frá síðasta fundi.

Miðað við núverandi tillögu er þéttleiki byggðar í 2. áfanga 15,3 íb./ha. sem er heldur minna en rammaskipulagið gerði ráð fyrir sem var 16,4 íb./ha.  Ákveðið að Gylfi vinni áfram að tillögunni út frá þeim forsendum sem kynntar voru á fundinum og komi aftur á fund nefndarinnar 2. okt. n.k.

 

2.

Skógarhverfi, breyting á deiliskipulagi - 1. áfangi

 

Mál nr. SB060068

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 7,9,11 og 13 við Seljuskóga og nr. 1,3,5,7 og 9 við Viðjuskóga.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytinguna og leggur til við bæjarstjórn að auglýsa breytinguna skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

 

3.

Sunnubraut 2, Breytt notkun

(000.872.10)

Mál nr. BN060014

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt mætti á fundinn og kynnti hugmyndir að breyttri notkun lóðarinnar.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytinguna og leggur til við bæjarstjórn að auglýsa breytinguna skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

  

4.

Tindaflöt 12,14 og 16, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB060062

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur að stækkun lóðanna 12,14 og 16 við Tindaflöt kynnt.

Nefndin fól sviðsstjóra að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum.

 

5.

Ökugerði, staðsetning

 

Mál nr. SB060065 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt kynnti fyrstu hugmyndir sínar að staðsetningu og útliti ökugerðis.

Nefndin fól henni að vinna tillöguna áfram á grundvelli umræðna á fundinum.

  

6.

Jörundarholt, þétting byggðar

 

Mál nr. SB060044

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga að þéttingu byggðar í Jörundarholti.

Skipulags- og byggingarnefnd ákveður að gera ekki breytingar á gildandi skipulagi að sinni.

 

7.

Umferðamál, endurskoðun á hámarkshraða

 

Mál nr. SB060027

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Umfjöllun um fyrirliggjandi tillögu.

Skipulags- og byggingarnefnd felur sviðsstjóra að vinna áfram að frekari áfangaskiptingu tillögunnar sem nefndin hefur til umfjöllunar.

 

8.

Suðurgata 20, fyrirspurn um staðsetningu húss á lóð

(000.932.10)

Mál nr. SU060015 

650700-2440 Al-Hönnun ehf, Skólabraut 30, 300 Akranesi

030576-5439 Ole Jakob Volden, Akurgerði 11, 300 Akranesi

Nefndin óskaði á 4. fundi eftir að umsækjandi legði fram götumynd af Suðurgötu 16, 18, 20, 22 og 26.

Uppdráttur af götumynd lagður fram og samþykktur.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00