Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)

130. fundur 27. febrúar 2006 kl. 17:00 - 18:10

130. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal að Dalbraut 8 , mánudaginn 27. febrúar 2006 kl. 17:00.


 

Mætt á fundi:           

Magnús Guðmundsson formaður

Lárus Ársælsson

Kristján Sveinsson

Eydís Aðalbjörnsdóttir

 

Auk þeirra var mætt:

Skúli Lýðsson byggingarfulltrúi

Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð

 

 

1.

Hólmaflöt 1, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SU060008

 

210864-2969 Logi Már Einarsson, Þingvallastræti 26, 600 Akureyri

Erindi Loga Más Einarssonar arkitekts dags. 6. febrúar f.h. lóðarhafa þar sem hann óskar eftir breyttri staðsetningu á bílgeymslu.

Skúli Lýðsson byggarfulltrúi mætir á fundinn.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við umbeðna breytingu en óskar eftir að byggingarfulltrúi fylgi málinu eftir með tilliti til umferðaöryggis.

 

 

2.

Kalmansbraut 2 og 4a, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SU060007

 

640774-1189 Pípulagningaþjónustan ehf., Smiðjuvöllum 8, 300 Akranesi

Nýr deiliskipulagsuppdráttur lagður fyrir fundinn.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umbeðna breytingu á deiliskipulagi um byggingu sem nái yfir lóðamörk Kalmansbrautar 2 og 4a.

Breytingin verði grenndarkynnt lóðahöfum Esjubrautar 47, Smiðjuvöllum 1 og Kalmansvöllum 4b.

 

3.

Heiðargerði 11- Akratorgsreitur, viðbygging

 

Mál nr. SU060012

 

040760-2029 Guðmunda Maríasdóttir, Heiðargerði 11, 300 Akranesi

Bréf Guðmundar Guðmundssonar og Guðmundu Maríasdóttur dags. 22.febrúar 2006 þar sem þau óska eftir  að fá að byggja viðbyggingu við húsið.

Skipulags- og umhverfisnefnd bendir bréfriturum á að húseignin Heiðargerði 11 er merkt í gildandi deiliskipulagi.

Nefndin gerir því ekki athugasemd við stækkun hússins upp að því nýtingarhlutfalli sem skipulagið leyfir.

 

4.

Kirkjubraut 56B - Arnardalur, yfirbyggt sund - geymsla

 

Mál nr. SU060013

 

170834-3649 Ólafur Ellertsson, Merkigerði 6, 300 Akranesi

Bréf Ólafs Ellertssonar dags. 21. febrúar 2006 þar sem hann óskar eftir að fá að byggja yfir sund á milli skúra á lóð Kirkjubrautar 56b og nota sem geymslu.

Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að fyrirhuguð er endurskoðun á gildandi deiliskipulagi svæðisins, því er ekki mögulegt að samþykkja erindið á þessu stigi.

 

5.

Staðardagskrá 21 - ráðstefna, ráðstefna í Reykholti

 

Mál nr. SU060014

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Bréf bæjarráðs 17. febrúar 2006 þar sem erindi verkefnisstjóra Staðardagskrár 21, dags. 14. febrúar 2006 er vísað til formanns skipulags- og umhverfisnefndar.

Erindið er boðun til landsráðstefnu um Staðardagskrá 21 í Snorrastofu í Reykholti föstudaginn 3. mars og laugardaginn 4. mars og hefst hún kl. 13.00 fyrri daginn.

Magnús Guðmundsson og Lárus Ársælsson mæta á ráðstefnuna fyrir hönd bæjarins.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:10

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00