Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)

111. fundur 22. ágúst 2005 kl. 17:00 - 19:30

111. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, mánudaginn 22. ágúst 2005 kl. 17:00.


Mætt á fundi:           

Magnús Guðmundsson formaður

Lárus Ársælsson

Kristján Sveinsson

Edda Agnarsdóttir

Auk þeirra voru mætt:

Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni og umhverfissviðs

Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð

 


1.

Skógarhverfi, rammaskipulag

 

Mál nr. SU050012

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Drög að rammaskipulagi í Skógarhverfi.

Árni Ólafsson arkitekt og Hrund Skarphéðinsdóttir verkfræðingur mættu á fundinn og gerðu grein fyrir tillögunni.

Hönnuðir fóru yfir drög að rammaskipulagi í Skógarhverfi. Nokkrar athugasemdir komu fram. Stefnt er að kynningu rammaskipulagsins um leið og kynningu á 1. áfanga deiliskipulags Skógarhverfis.

 

2.

Skógarhverfi, deiliskipulag - 1. áfangi

 

Mál nr. SU050055

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Árni Ólafsson arkitekt og Hrund Skarphéðinsdóttir verkfræðingur kynntu drög að deiliskipulagi 1. byggingaráfanga í Skógarhverfi.

Farið yfir drög að deiliskipulagi 1. byggingaráfanga í Skógarhverfi þar sem gert er ráð fyrir um 100 íbúðum.

Ræddar voru húsagerðir, stærð lóða o.fl. Hönnuðir munu lagfæra drögin og vinna 2. drög.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00