Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)

88. fundur 14. febrúar 2005 kl. 17:00 - 18:45

88. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness verður haldinn í fundarsal að Dalbraut 8, mánudaginn 14. febrúar 2005 kl. 17:00.


Mættir á fundi:         

Magnús Guðmundsson

Lárus Ársælsson

Kristján Sveinsson

Eydís Aðalbjörnsdóttir

Edda Agnarsdóttir

Auk þeirra voru mættir

Þorvaldur Vestmann Magnússon

Guðný J. Ólafsdóttir

 


 

1.

Hafnarsvæði, aðalskipulagsbreyting á stærð fyllinga á  hafnarsvæði

 

Mál nr. SU040085

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur að breytingu á aðalskipulagi.

Fyrir liggur  bréf  Skipulagsstofnunar þar sem fram kemur sú skoðun  að umrædd breyting sé það umfangsmikil að hún geti ekki talist óveruleg. Stofnunin telur að breytingin verði að auglýsa skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga  nr. 73/1997.

Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir því að skipulagshönnuði verði falið að gera viðeigandi breytingar á aðalskipulagstillögu í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar.

 

2.

Hagaflöt 7 - Klasi 5 - 6, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SU050002

 

500602-3170 Stafna á milli ehf, Maríubaug 5, 113

Erindi Stafna á milli ehf.  þar sem farið er fram á deiliskipulagsbreytingu á  Hagaflöt 7.

Nýr skipulagsuppdráttur lagður fram.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt  skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Grenndarkynningin nái til lóðarhafa við Hagaflöt 1 til 10 og Holtsflöt 9.

 

 

3.

Garðalundur, deiliskipulag

 

Mál nr. SU030032

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Sviðsstjóri gerir grein fyrir stöðu mála og leggur fram bréf frá Skipulagsstofnun dags. 27. janúar.

Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir því að skipulagshönnuði verði falið að gera viðeigandi breytingar á tillögu um breytt aðalskipulag. Breytingin á aðalskipulagi verði auglýst samhliða auglýsingu á nýju deiliskipulagi.

  

4.

Jaðarsbakkar, skipulagsverkefni

 

Mál nr. SU040088

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Leiðrétting á bókun frá síðasta fundi þar sem misritaðist  að auglýsa ætti skv. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 en það á að vera 25. gr. sömu laga.

Lögð er fram ný tillaga að skipulagi Jaðarsbakka ásamt drögum að greinargerð frá ARKÍS.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leiðrétta bókun frá síðasta fundi þar sem bókað var að auglýsa ætti skv. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 en það á að vera 25. gr. sömu laga vegna þess að um nýtt skipulag er að ræða.

Umræður um nýjan uppdrátt, tekið aftur upp á næsta fundi.

 

 

5.

Breiðin veitingahús, Bárugötu 15, Akranesi, áfengisleyfi

 

Mál nr. SU050004

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Bréf bæjarráðs dags. 7. febrúar 2005 þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um leyfi til áfengisveitinga fyrir Hauk Smára Gröndal, kt. 031281-3269 f.h. Básenda ehf. kt. 491100-2060 vegna veitingahússins Breiðin, Bárugötu 15, Akranesi.

Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs gerir ekki athugasemd varðandi ofangreinda umsókn þar sem hún er í fullu samræmi við skipulagslög.

Skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir afgreiðslu sviðsstjóra.

  

6.

Kirkjubraut 39, bensínafgreiðslustöð

 

Mál nr. SU050005

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Bréf bæjarráðs dags. 11. febrúar 2005 þar sem óskað er eftir áliti skipulags- og umhverfisnefndar á staðsetningu bensínafgreiðslustöðvar á lóðinni nr. 39 við Kirkjubraut.

Fyrir liggur gildandi deiliskipulagsuppdráttur ásamt greinargerð, þar sem gert er ráð fyrir að á lóðinni við Kirkjubraut 39 (41) verði opinberar stofnanir, verslun eða þjónusta. Í skipulagsskilmálum segir um lóðina:

?Á þessari lóð er gert ráð fyrir að bensín og olíusala verði lögð niður og byggingin verði fjarlægð og þar rísi 3ja hæða verslunar- og skrifstofubygging eða stofnanabygging, sem taki mið af Kirkjubraut 37 og Heiðarbraut 40 hvað hæð varðar. Nýtingarhlutfall lóðarinnar skal vera á milli 0.4 ? 0.6. Byggingin skal vera í sömu byggingarlínu við Kirkjubraut og bygging Pósts og síma.?

Það er mat skipulags- og umhverfisnefndar að meðan núverandi bygging er ekki rifin  þá sé bensín- og olíusala heimil. 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:45

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00