Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)

49. fundur 19. janúar 2004 kl. 08:18 - 19:45

49. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 19. janúar 2004 kl. 16:00.


Mættir á fundi:  Magnús Guðmundsson formaður
Kristján Sveinsson
Edda Agnarsdóttir
Lárus Ársælsson
Eydís Aðalbjörnsdóttir
Auk þeirra voru mættir  Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skipulagsfulltrúi, Þorvaldur Vestmann, sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs, og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.



1. Eyrarflöt 4, nýtt hús  Mál nr. BN040003

670184-0489 Verk - Vík ehf., Þykkvabæ 13, 110 Reykjavík
Erindi vísað frá Byggingarnefnd, 1286. fundi dags. 20. jan. 2004.

Fyrirspurn Gunnars Árnasonar kt. 101169-5379 hf. Verk- Vík ehf. um hvort fjölga megi íbúðum úr 6 í 8 samkvæmt meðfylgjandi teikningum Lofts Þorsteinssonar byggingarfræðings.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í að fjölga íbúðum  úr  6 í 8, ásamt þeim breytingum sem það hefur í för með sér. Gera þarf deiliskipulagsbreytingu og mun nefndin taka endanlega afstöðu til málsins þegar tillaga kemur fyrir nefndina.


2. Miðbæjarreitur, deiliskipulagsbreyting  Mál nr. SU020032

440403-3010 Skagatorg ehf. , Stillholti 18, 300 Akranesi
Deiliskipulagsuppdráttur Kristins Ragnarssonar ehf. að Miðbæjarreit með áorðnum breytingum.  Uppdráttur með greinargerð dags. 27. nóvember 2003. Samþykktur af meiri hluta bæjarstjórnar  13. janúar 2004.
Tillagan lögð fram.  Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að halda almennan kynningarfund um deiliskipulagstillöguna. Skipulagsfulltrúa falið að undirbúa og boða til fundar.


3. Jaðarsbakkasvæði og Langisandur, skýrsla starfshóps um skipulagsmál  Mál nr. SU040002

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Áður frestað erindi. Skýrsla starfshóps um skipulagsmál á Jaðarsbakkasvæði og Langasandi. Jafnframt bréf bæjarráðs Akraness dags. 9. janúar 2004
Rætt um skýrslu starfshóps um skipulagsmál á Jaðarsbakkasvæði og Langasandi.  Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að leita eftir tillboði í deiliskipulagsgerð fyrir svæðið.  Skýrslan verði höfð til hliðsjónar við skipulagsgerð.
 


4. Hafnarsvæði, deiliskipulagsbreyting  Mál nr. SU030040

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga Magnúsar H. Ólafssonar að deiliskipulagsbreytingu Hafnarsvæðis vegna fiskmarkaðar og fóðurskemmu Stjörnugríss. Tillagan var auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Ein athugasemd barst frá LEX ehf. lögmannsstofu f.h. Sementsverksmiðjunnar hf. dags. 14. janúar 2004.
Jafnframt umsögn Siglingastofnunar Íslands dags. 08.01.2004.
Skipulagsfulltrúa falið að gera greinargerð við athugasemdir Sementsverksmiðjunnar.


5. Smiðjuvellir, Esjubraut 49, deiliskipulagsbreyting  Mál nr. SU030057

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla vegna lóðarinnar nr. 49 við Esjubraut. Uppdráttur frá Hönnun dags. 15.09.2003. Deiliskipulagstillagan var auglýst skv. 25. gr. skipulags og byggingarlaga  nr. 73/1997. Ein athugasemd barst frá Vegagerðinni, bréf dags. 19. desember 2003 vegna fyrirhugaðs hringsotgs.
Jafnframt forhönnun hringtorgs greinargerð og uppdráttur frá Hönnun dags. janúar 2004
Skipulags og umhverfisnefnd leggur til að auglýstri deiliskipulagstillögau verði breytt og tekið verði tillit til landnotkunar vegna hringtorgs sbr. greinargerð og uppdrátt Vegagerðarinnar.  Breytt tillaga verði lögð fyrir næsta fund nefndarinnar. Lárus Ársælsson vék af fundi undir þessum lið.


6. Flatahverfi meðfram Þjóðbraut, deiliskipulagsbreyting  Mál nr. SU040007

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Bréf bæjarráðs dags. 9. janúar 2004 vegna umsóknar Stafna á milli ehf. um lóðina nr. 14 við Þjóðbraut.
Skipulags- og umhverfisnefnd er falið að taka svæðið austan Þjóðbrautar til endurskoðunar m.a. með tilliti til aðliggjandi byggðar, legu Þjóðbrautar, gatnamóta Þjóðbrautar og Innnesvegar  og tengingu klasa 1 og 2 við Innnesveg.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að leita eftir tilboðum í breytingu á deiliskipulagi á svæðinu austan Þjóðbrautar samkvæmt bókun bæjarráðs.
 


7. Akratorgsreitur, deiliskipulagsbreyting  Mál nr. SU030044

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga dags. 15.1.2004 frá Hönnun að  deiliskipulagsbreytingu  Akratorgsreits á Hvítanesreit.
Skipulags- og umhverfisnefnd lítur jákvætt á framkomna tillögu. Skipulagsfulltrúa falið að fylgja málinu eftir á grundvelli umræðna á fundinum. Breytt tillaga verði lögð fyrir á næsta fundi nefndarinnar.


8. Flatahverfi klasi 1 og 2, deiliskipulagsbreyting  Mál nr. SU030060

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Breyting á deiliskipulagi í klasa 1 og 2 í Flatahverfi  vegna einbýlishúsalóða  meðfram Innnesvegi og  Garðagrund.

Skipulagsfulltrúa falið að semja við Kanon arkitekta um vinnu við breytingu á deiliskipulagi einbýlishúsalóða við nr. 2-4-6-8 við Dalsflöt  og nr. 1-3-5-7 við Bakkaflöt.


9. Umferðarmál, Gatnatenging að golfvelli  Mál nr. SU040004

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga að legu vegar frá Smáraflöt um fyrirhugað hringtorg að golfvelli.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir bráðabirgðatengingu inn á golfvallarsvæðið samkvæmt fyrirliggjandi tillögu og breytingu samkvæmt umræðum á fundinum.  Sviðstjóra tækni- og umhverfissviðs falið að ganga frá málinu.


10. Umferðaröryggismál, hraðahindrun  Mál nr. SU040005

Tillaga að staðsetningu á  hraðahindrun á Skagabraut og Suðurgötu í kjölfar samþykktar bæjarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.


11. Umferðaröryggismál, handstýrð gangbrautarljós  Mál nr. SU040006

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tillaga að handstýrðum gangbrautarljósum á Kirkjubraut og Garðagrund.
Lagt fram til kynningar.
 
12. Verkefni ársins 2004, auglýsing um skipulagsvinnu  Mál nr. SU040001

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Drög skipulagsfulltrúa að auglýsingu um skipulagsvinnu sbr. samþykkt nefndarinnar frá síðasta fundi.
Tillaga skipulagsfulltrúa samþykkt.


13. Flatahverfi meðfram Þjóðbraut., bréf  Mál nr. SU040008

050602-3170 Stafna á milli ehf , Maríubaug 5, 113

Bréf Engilberts Runólfssonar fyrir hönd Stafnaá milli ehf dags. 14. janúar sl.varðandi lóðirnar nr. 14, 16 og 18 við Þjóðbraut.
Frestað.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:45

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00