Fara í efni  

Öldungaráð

27. fundur 21. nóvember 2025 kl. 10:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður
  • Kristján Sveinsson aðalmaður
  • Erla Dís Sigurjónsdóttir aðalmaður
  • Jóhannes Hreggviðsson aðalmaður
  • Ragnheiður Helgadóttir aðalmaður
  • Sigurborg Halldórsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Kristín Björg Jónsdóttir forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu
Fundargerð ritaði: Kristín Björg Jónsdóttir Forstöðumaður stuðnings-og stoðþjónustu
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2027-2029.

2505217

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun fór fram í bæjarstjórn 11.nóvember sl. Málið verður til áframhaldandi vinnslu á næsta fundi bæjarráðs 20.nóvember sem og á fundum annara fagráða Akraneskaupstaðar.
Öldungaráð leggst gegn hækkun á heimaþjónustu þar sem gjaldskrá hennar hækkaði fyrr á árinu umtalsvert.
Öldungaráð fagnar fyrirhuguðu Akranes-appi vegna sorphirðu en leggur áherslu á að enn verði tekið tillit til þess hóps sem ekki getur nýtt sér stafrænar lausnir.

2.Sundabraut og Akranes - Umsögn um umhverfismatsskýrslu

2403242

Til kynningar
Lagt fram til kynningar

3.Gott að eldast - samráð og útfærsla samþættingar á Akranesi

2408122

Fyrir liggur samþætting heimahjúkrunr og heimaþjónustu sem hluta af Gott að eldast verkefninu. Viðræður eru í gangi milli aðila og hjúkrunarheimilið Höfði hefur lýst yfir vilja til að Höfði verði kjarninn í samþættri þjónustu við eldra fólk á Akranesi. SSV er í ráðningarferli á iðjuþjálfa sem ætlunin er að vinni þvert á þessar stofnanir sem stuðningur við verkefnið.
Lagt fram til kynningar.

4.Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar 2024

2401211

Hafið er útboð á akstursþjónustu sveitafélagsins. Útboðinu er skipt í tvo samningshluta til að stuðla að aukinni samkeppni. Samningshlutarnir á yfir samþætta akstursþjónustu og akstur máltíða í samræmi við skilmála útboðslýsingar. Tilboðum skal skilað eigi siðar en 8.des.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu