Fara í efni  

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi

2. fundur 14. september 2020 kl. 16:15 - 17:30 í Frístundamiðstöðinni Garðavelli
Nefndarmenn
  • Sigríður Margrét Matthíasdóttir aðalmaður
  • Borghildur Birgisdóttir varamaður
  • Böðvar Guðmundsson aðalmaður
  • Sólveig Salvör Sigurðardóttir aðalmaður
  • Halldór Jónsson aðalmaður
  • Kristín Þóra Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Sylvía Kristinsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir sviðsstjóri Velferðar- og mannréttindaráðs
Dagskrá

1.Fjöliðjan - uppbygging á Dalbraut 10

1910179

Á fundi bæjarráðs þann 8. apríl sl. beindi Skipulags- og umhverfisráð því til bæjarráðs að stofnaður yrði vinnuhópur um viðhald og stækkun húss Fjöliðjunnar vinnu- og hæfingarstað við Dalbraut 10 vegna bruna sem átti sér stað í starfsstöðinni 7. maí 2019. Bæjarráð fól bæjarstjóra að skipa vinnuhópinn með fulltrúum embættismanna. Vinnuhópurinn leggur nú fyrir Notendaráð nokkrar mögulegar sviðsmyndir um uppbyggingu og óskar eftir umsögn Notendaráðs.



Karl Jóhann Haagensen verkefnastjóri skipulags- og umhverfissviðs, Alfreð Þór Alfreðsson rekstrarstjóri áhaldahúss og umsjónarmaður fasteigna og Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður Fjöliðjunnar vinnu- og hæfingarstað mættu á fund notendaráðsins og kynntu mögulegar sviðsmyndir uppbyggingar starfsemi Fjöliðjunnar á núverandi stað við Dalbraut 10. Notendaráð mun ljúka við umsögn sína á næsta fundi ráðsins.
Karl Jóhann Haagensen verkefnastjóri skipulags- og umhverfissviðs, Alfreð Þór Alfreðsson rekstrarstjóri áhaldahúss og umsjónarmaður fasteigna og Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður Fjöliðjunnar vinnu- og hæfingarstað mættu á fund notendaráðsins og kynntu mögulegar sviðsmyndir uppbyggingar starfsemi Fjöliðjunnar á núverandi stað við Dalbraut 10.
Notendaráð mun ljúka við umsögn sína á næsta fundi ráðsins.

Fundi slitið - kl. 17:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00