Fara í efni  

Menningarmála- og safnanefnd (2000-2008)

61. fundur 26. september 2007 kl. 17:00 - 18:20

61. fundur í menningarmála- og safnanefnd var haldinn miðvikudaginn 26. september 2007 í fundarsal bæjarskrifstofu að Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 17:00.

______________________________________________________ 

 

Mættir:             Magnús Þór Hafsteinsson, formaður

                        Hjördís Garðarsdóttir

Varamaður:     Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

                        Ólafur Haraldsson

 

Auk þeirra, Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari sem einnig ritaði fundargerð. 

______________________________________________________________ 

 

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna til fundar.

 

Fyrir tekið:

 

1.   Viðræður við fulltrúa Skagaleikflokksins um starfsemi félagssins og húsnæðismál.

Á fundinn mættu til viðræðna þau Guðbjörg Árnadóttir og Þórdís Guðbjörnsdóttir.

 

2.   Írskir dagar.  Viðræður við Tómas Guðmundsson markaðsfulltrúa.

Upplýsingar um kostnað vegna Írskra daga lagðar fram og ræddar. Upplýst var að fyrirhugað er að halda ráðstefnu þann 18. október n.k. á Akranesi um framkvæmd og fyrirkomulag bæjarhátíða.

 

3.   Vökudagar 2007 ? áherslur og undirbúningur.

Málið rætt.  Lögð fram fyrstu drög að dagskrá.  Einnig rætt um fyrirkomulag setningar Vökudaga sem fyrirhuguð er föstudaginn 2. nóvember.

 

4.   Önnur mál.

Rætt um merkingu menningarminja og sögustaða við gönguleiðir og stíga umhverfis bæjarlandið.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:20.

 

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00